Beint í efni

Skýrsla starfshóps vegna þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi

Málsnúmer 1507221

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Vegna þingsályktunar nr.5/143 dags 19. des 2013.

Skýrsla starfshóps um leikskóla að loknu fæðingarorlofi lögð fram. Starfshópurinn greindi faglegar kröfur og fjárhagsleg sjónarmið sem taka þurfi tillit til. Niðurstaða hópsins er að faglegt leikskólastarf er sá kostur sem þykir eftirsóknaverðastur fyrir börn og foreldra og mætir best kröfum atvinnulífsins. Í Garðabæ eru öll börn að komast að í leikskóla um eins árs aldur, annað hvort í almennum leikskólum eða ungbarnaleikskólum. Fagnar nefndin þeim áfanga sem náðst hefur í að tryggja öllum börnum leikskóladvöl svo snemma. Laust er hjá dagforeldrum í Garðabæ fyrir yngri börn.