Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 28/4 ´15.

Málsnúmer 1504024F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. fundur

Til sérstakrar afgreiðslu:

Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi vegna Búðarflatar 2-4.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og sagði frá viðræðum við eiganda lóðarinnar um möguleika á nýtingu hennar.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 20. tl., fyrirspurn um stjórnarkjör til aðalstjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Lánasjóður sveitarfélaga starfar samkvæmt hlutafélagalögum og sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Í 15. grein samþykkta fyrir Lánasjóð sveitarfélaga kemur fram að stjórn félagsins skuli skipuð fimm mönnum kjörnum til eins árs í senn á aðal- eða hluthafafundi. Kosning stjórnar skuli jafnan vera skrifleg, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal. Um hæfi stjórnarmanna fari að lögum. Ekki er minnst á kjörnefnd í samþykktum sjóðsins en stjórn lánasjóðsins kýs kjörnefnd og er hlutverk hennar að auglýsa eftir framboðum og setja tímafresti, fara yfir framboð sem berast til stjórnar, stilla upp tillögu að stjórn og varastjórn fyrir aðal- eða hluthafafund og ákveða með hvaða hætti varamenn koma inn í forföllum aðalmanna.$line$Þegar kjörnefnd tilkynnti tillögur sínar til aðalfulltrúa í stjórn á aðalfundi lánasjóðsins 17. apríl s.l. þá kom fram í máli formanns kjörnefndar, Erlings Ásgeirssonar að taka þyrfti tillit til búsetu og flokkslína við val á aðalmönnum. Ekki er hægt að sjá að sú afstaða formanns eigi sér stoð í lögum né heldur það vinnulag kjörnefndar að hringja í frambjóðendur og falast eftir að þeir dragi framboð sín til baka í þeim tilfellum sem aðalmenn vilji halda áfram stjórnarsetu. Í lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 segir hins vegar að fjármálaeftirlitið setji reglur um fjárhagslegt sjálfstæði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra og um hvernig staðið skuli að hæfismati. $line$Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þar sem til umfjöllunar var með hvaða hætti bæjarstjóri sem fulltrúi Garðabæjar hafi greitt atkvæði við kjör á aðalmönnum til stjórnar félagsins kom fram hjá Gunnari Einarssyni bæjarstjóra að hann teldi að kjörnefnd hafi valið hæfasta fólkið til starfa, þrátt fyrir að í orðum formanns kjörnefndar hafi komið fram að taka hafi þurft tillit til búsetu og flokkslína. Bæjarstjóri spurði einnig hvað væri eiginlega svona flókið við að skilja þetta. $line$Við sem viljum að farið sé eftir lögum og reglum, viljum gera rétt og þola eigi órétt finnst verulega flókið að skilja með hvaða hætti bæjarstjóri og kjörnefnd lánasjóðs sveitarfélaga kemst að þeirri niðurstöðu að hafna reynslumestu frambjóðendum á fjármálamarkaði við kjör til aðalstjórnar sjóðsins. Aðilum með framhaldsháskólamenntun á sviði viðskipta og allt að 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Athugasemdum varðandi hvernig staðið er að vali á aðalmönnum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga verður því komið á framfæri við Fjármálaeftirlitið þar sem búseta og flokkslínur virðast teknar fram yfir hæfniskröfur umsækjenda."$line$$line$Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.