Beint í efni

Skólagjöld Tónlistaskóla Garðabæjar skólaárið 2015-2016.

Málsnúmer 1410146

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. fundur

Kristinn Guðlaugsson, gerði grein fyrir tillögu skólanefndar um nýja gjaldskrá sem taka á gildi við upphaf næsta skólaárs. Fram kom í máli Kristins að gert er ráð fyrir að skólagjöld hækki um 3,4% skólaárið 2015 - 2016.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2015 - 2016.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16 (1684). fundur

Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrá fyrir skólaárið 2014 - 2015 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

8. fundur

Fyrir fundinum lá tillaga að gjaldskrá fyrir skólaárið 2015-2016. Gerir gjaldskráin ráð fyrir 3,4% hækkun gjalda sem eru í samræmi við þær gjaldskrárhækkanir sem urðu um síðast liðin áramót.$line$Skólanefndin samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2015-2016.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram gjaldskrá TG fyrir skólaárið 2013-2014 en engin hækkun varð á skólagjöldum fyrir yfirstandandi skólaár. Samkvæmt 11. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla kemur fram að tónlistarskólum ber að innheimta skólagjöld til að standa undir öðrum kostnaði en launum kennara og skólastjóra. Verður frekar rætt á næsta fundi nefndarinnar í tengslum við nánari yfirferð fjárhagasáætlunar.