Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (1703). fundur
Bæjarráð samþykkir að tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til veitingahúslóðarinnar Ránargrund 2-4 að lokinni kynningu sem stóð frá 15.maí til 26.júní. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóð stækki og að hámarksbyggingarmagn aukist. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna stækkunar á lóð og húsnæði fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Bæjarráð Garðabæjar
04
12. (1680). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna stækkunar á lóð og húsnæði fyrir veitingastað við Arnarnnesvog.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðar fyrir veitingastað við Ránargrund og nánasta umhverfis. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin verði 4089 m2 í stað 1350 og að bílastæði verði innan lóðar. Hámarksstærð veitingahússins verður 500 m2 í stað 300 og hámarkshæð útveggja verður 5,5 m í stað 3,5. Gert er ráð fyrir 32-48 bílastæðum innan lóðar. Ný aðkoma verður frá hringtorgi hjá Unnargrund/Sjávargrund.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær lóðanna Ránargrund 2 og 4 þar sem gert er ráð fyrir veitingastað og aðstöðu fyrir siglingaklúbb. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar og byggingarreits fyrir veitingastað og aðkomu að honum frá hringtorgi á mótum Vífilsstaðavegar og Unnargrundar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.