35. (1703). fundur
35. (1703). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.09.2015
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1503196
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - vinnuferli og forsendur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir vinnuferli við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 (2016-2019) en samkvæmt því er lagt til að fyrri umræða verði í bæjarstjórn 5. nóvember og síðari umræða 3. desember
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1306485
02
Drög að samningi við félagasamtök vegna afnota að húsnæði Bjarnastaða ásamt umgengnisreglum
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samninga við félagasamtök um afnot af húsnæði Bjarnastaða fyrir starfsemi viðkomandi félaga. Þá samþykkir bæjarráð reglur um umgengni og bókun á aðstöðu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1502266
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað.
Bæjarráð samþykkir að tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1507233
04
Bréf KPMG fh. umbj. um niðurfellingu útsvars, dags. 28.07.15.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki heimild í 25. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 til að lækka eða fella niður álagt útsvar. Bæjarráð bendir umsækjanda á að leita til Ríkisskattstjóra með umsókn um lækkun á útsvarsstofni á grundvelli laga um tekjuskatt nr. 90/2003 eða eftir atvikum að leita til fjölskyldusviðs á grundvelli ákvæða laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Málsnúmer 1509170
05
Bréf formanns fjárlaganefndar Alþingis um fundartíma með sveitarstjórnum, dags. 10.09.15.
Málsnúmer 1402457
06
Staða mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ.
Gerð var grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Gagnaveitu Reykjavíkur en á vegum fyrirtækisins er nú unnið að því að bjóða heimilum og fyrirtækjum í Garðabæ tengingar við ljósleiðara. Í dag getur fyrirtækið boðið um þriðjungi heimila í Garðabæ tengingu við ljósleiðara en stefnan er að geta boðið ljósleiðaratengingar í öllum Garðabæ árið 2018 - 2019. Á fundinum lýstu forsvarsmenn fyrirtækisins yfir vilja til að gera samstarfsyfirlýsingu við bæjarfélagið um það markmið.
Þá var gerð grein fyrir að um 70% stofnana bæjarins eru tengdarmeð ljósleiðara m.a. bæjarskrifstofur og allir grunnskólar bæjarins. Jafnframt er unnið að samtengingu stofnana með svokölluðu bæjarneti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða áfram við fyrirtækið um bætta ljósleiðaratengingu og val bæjarbúa á þjónustu sem í boði er.
Málsnúmer 1506139
07
Bréf THG - arkitekta varðandi deiliskipulag Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 3, dags. 01.09.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og meðferðar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509175
08
Bréf Artic Circle varðandi alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða 16-18. okt., dags. 10.09.15.
Málsnúmer 1509177
09
Drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf barna og ungmenna í Garðabæ.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir samstarfi við Klifið um tómstundastarf barna og ungmenna í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir samstarfsamning við Klifið og samning um afnot af húsnæði Holtsbúðar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509161
10
Bréf Atlantsolíu um lóð undir sjálfsafgreiðslustöð í Hnoðraholti, dags. 09.09.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509105
11
Bréf umhverfisnefndar varðandi tillögur til fjárhagsáætlunar umhverfismála 2016, dags. 09.09.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509027
12
Bréf Skógræktarfélags Garðabæjar um starfsáætlun o.fl.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.