Beint í efni

Staða mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ.

Málsnúmer 1402457

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

35. (1703). fundur

Gerð var grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Gagnaveitu Reykjavíkur en á vegum fyrirtækisins er nú unnið að því að bjóða heimilum og fyrirtækjum í Garðabæ tengingar við ljósleiðara. Í dag getur fyrirtækið boðið um þriðjungi heimila í Garðabæ tengingu við ljósleiðara en stefnan er að geta boðið ljósleiðaratengingar í öllum Garðabæ árið 2018 - 2019. Á fundinum lýstu forsvarsmenn fyrirtækisins yfir vilja til að gera samstarfsyfirlýsingu við bæjarfélagið um það markmið.

Þá var gerð grein fyrir að um 70% stofnana bæjarins eru tengdarmeð ljósleiðara m.a. bæjarskrifstofur og allir grunnskólar bæjarins. Jafnframt er unnið að samtengingu stofnana með svokölluðu bæjarneti.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða áfram við fyrirtækið um bætta ljósleiðaratengingu og val bæjarbúa á þjónustu sem í boði er.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu mála varðandi ljósleiðaratengingar í Garðabæ. Fram kom að á vegum Mílu hefur verið unnið að því að bjóða íbúum bæjarins að tengjast ljósneti. Á vegum Gagnaveitunnar hefur verð unnið að því að bjóða ljósleiðaratengingar í nýrri hverfum eins og Akrahverfi og Sjálandi.$line$$line$Á Álftanesi er möguleikar á tengingu við ljósnetið í nokkrum hverfum og á vegum Mílu er verið að vinna að því að bjóða tengingar í sem flestum hverfum. Í framkvæmd við lagningu nýs Álftanesvegar er gert ráð fyrir lögn fyrir ljósleiðara á vegum Mílu.$line$$line$Í þeim tilvikum sem fyrirtæki og eftir atvikum einstaklingar þurfa mikla gagnaflutninga eða hraða geta aðilar gert samninga við fyrirtækin á markaði um sérstakar tengingar.