8. fundur
8. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.02.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi er varðar opið svæði á Arnarnesi
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins, sbr. afgreiðsla á dagskrárlið 2.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes
Við lokaumfjöllun um deiliskipulag Arnarness samþykkti skipulagsnefnd að gera tillögu um að breyta lóðinni við Hegranes 1 - 3 í fjórar einbýlishúsalóðir í stað keðju-/stallahúsa sem gert hafði verið ráð fyrir í auglýstri tillögu.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að áður en tillagan verður tekin til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar verði bæjarstjóra falið að kynna lóðareigendum tillögu skipulagsnefndar.$line$
03
Endurmat á faglegum og fjárhagslegum forsendum yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks
Félagsmálastjóri gerði grein fyrir svörum Garðabæjar í spurningakönnun Sambands íslenskra sveitarfélaga í tengslum við endurmat á faglegum og fjárhagslegum forsendum yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks.$line$$line$Spurningakönnunin er liður í sameiginlegu mati ríkis og sveitarfélaga sem á að fara fram á árinu 2014 á faglegum og fjárhagslegum árangri af flutningi verkefnisins frá ríki til sveitarfélaga. Stefnt er að því að niðurstaða endurmatsins liggi fyrir við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2015.
04
Bréf frá Alþingi varðandi frumvarp til laga um skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli, 217. mál, dags. 19.02.14.
Lagt fram.
05
Bréf Nordjobb varðandi sumarstörf 2014, dags. 14.02.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
06
Reglur um fjárhagsaðstoð - framkvæmd afgreiðslna samkvæmt 19. gr.
Félagsmálastjóri gerð grein fyrir álitmálum er varða túlkun á framkvæmd á ákvæði 19. gr. í reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð en í ákvæðinu er mælt fyrir um að þeir einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð.$line$$line$Kynnt var samantekt Juris-lögfræðistofu á úrskurðum þar sem álitamálið hefur verið til umfjöllunar.$line$$line$Bæjarráð leggur áherslu á að í hverju tilviki fari fram heildstætt mat á högum einstaklinga þannig að tryggt sé hverju sinni að þeir fái notið fjárhagsaðstoðar þegar aðstæður þeirra eru þannig að þeir geta sannanlega ekki framfleytt sér sjálfir.
08
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 14.02. - 21.02.14
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 07.02. - 14.02.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Lækjarfit 19.$line$$line$Stefán Snær Konráðsson, vék sæti við afgreiðslu malsins vegna tengsla við málsaðila.
09
Ársreikningur 2013 - tillaga að niðurfærslu krafna.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um niðurfærslu krafna.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu um niðurfærslu krafna.
10
Fjárstreymisyfirlit jan - des 2013
Fjármálastjóri mætti á fund bæjarráð og gerði grein fyrir fjárstreymisyfirliti í desember 2013.
11
Ljósleiðaratengingar í Garðabæ - staða mála
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu mála varðandi ljósleiðaratengingar í Garðabæ. Fram kom að á vegum Mílu hefur verið unnið að því að bjóða íbúum bæjarins að tengjast ljósneti. Á vegum Gagnaveitunnar hefur verð unnið að því að bjóða ljósleiðaratengingar í nýrri hverfum eins og Akrahverfi og Sjálandi.$line$$line$Á Álftanesi er möguleikar á tengingu við ljósnetið í nokkrum hverfum og á vegum Mílu er verið að vinna að því að bjóða tengingar í sem flestum hverfum. Í framkvæmd við lagningu nýs Álftanesvegar er gert ráð fyrir lögn fyrir ljósleiðara á vegum Mílu.$line$$line$Í þeim tilvikum sem fyrirtæki og eftir atvikum einstaklingar þurfa mikla gagnaflutninga eða hraða geta aðilar gert samninga við fyrirtækin á markaði um sérstakar tengingar.