Beint í efni

Kauptún1, 2 og 3 - breyting á aðalskipulagi Gbr 2004-2016

Málsnúmer 1506139

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (790). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Kauptún. Við afgreiðslu málsins liggur fyrir greinargerð um afstöðu til athugasemda, sbr. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (1729). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Kauptún. Við afgreiðslu málsins hefur verið tekin afstaða til athugasemda sbr. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem nær til þjónustu og verslunarsvæðis í Kauptúni. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Lögð fram greinargerð unnin á vegum skipulagsstjóra þar sem lagðar eru fram tillögur að viðbrögðum við athugasemdum og svör við þeim. Athugasemdir kalla ekki á breytingu á breytingartillögunni en skipulagsnefnd beinir því til aðalskipulagsráðgjafa að greina kosti umferðartenginga við gatnamót Reykjanesbrautar og Álftanesvegar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 32.grein Skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem nært til verslunar-og þjónustusvæðis í Kauptúni að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og aðalskipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

1. (784). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns eins og mælt er fyrir um í 1. mgr. 31.gr. skipulagslaga en áður skal tillagan send til athugunar hjá Skipulagsstofnun samkvæmt 3.mgr.30.gr. sömu laga.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Að verslunar- og þjónustusvæðið Kauptún verði afmarkað með sama hætti og í gildandi deiliskipulagi. Mörk landnotkunarreitsins færast við það lítillega til austurs upp í reit U-3 og reiturinn U-1 verður 27,5 h í stað 26,3. Reitur U-3 minnkar að sama skapi.
Að heildarbyggingarmagn svæðisins verði aukið úr 61.200 m2 í 80.000 m2. Nýtingarhlutfall hækkar við það úr 0.23 í 0.29.
Að kröfur um bílastæði verði felldar út og að þær verði ákveðnar í deiliskipulagi.

Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu og gerði nánari grein fyrir umfjöllun skipulagsnefndar um tillögur að breytingum á skipulagi í Kauptúni. Sigurður lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í tilefni af bókun fulltrúa Bjartrar framtíðar í skipulagsnefnd við afgreiðslu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns er rétt að fram komi að á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 3. desember s.l. var samþykkt að kynna tillöguna í samræmi við ákvæði skipulagslaga en áður hafði bæjarstjórn samþykkt sérstaka lýsingu á verkefninu sem jafnframt hefur verið kynnt.
Að lokinni kynningu tillögunnar ber samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga að leggja hana fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu. Í þeirri afgreiðslu felst að auglýsa tillöguna og gefa þeim sem hagsmuna eiga að gæta tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan ákveðins frests.
Að þeim fresti liðnum er tillagan tekin fyrir að nýju í bæjarstjórn og í umfjöllun bæjarfulltrúa um tillöguna skal tekin afstaða til einstakra athugasemda eða annarra þátta. Á því stigi er lagt mat á það hvort samþykkja eigi tillöguna, hafna henni eða samþykkja með breytingum.
Það er því alveg ljóst að málsmeðferð tillögunnar er í samræmi við ákvæði skipulagslaga og á þessu stigi eðlilegt að auglýsa tillöguna með formlegum hætti, kalla eftir athugasemdum. Í framhaldi mun fara fram umfjöllun um tillöguna á grundvelli skipulagslaga í anda lýðræðislegra vinnubragða og vandaðra stjórnsýsluhátta.“

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi tillögu um frestun á afgreiðslu málsins.

„Björt framtíð leggur til að afgreiðslu á breytingum á aðalskipulagi Kauptúns verði frestað og vísað aftur til skipulagsnefndar til frekari vinnslu.“

Greinagerð:
Björt framtíð telur að fyrirvari til að kynna sér gögn sem tengjast breytingu á aðalskipulagi vegna breytinga á skipulagi Kauptúns sé of stuttur til að hægt sé að taka upplýsta afstöðu til málsins að svo stöddu. Mikið magn ítarlegra gagna er varða málið voru fyrst aðgengileg í fundargátt rúmum sólarhring fyrir fund skipulagsnefndar og innan við tveimur sólarhringum fyrir fund bæjarstjórnar. Það getur síðan ekki talist eðlilegt að taka eigi fyrir fundargerð skipulagsnefndar í bæjarstjórn örfáum klukkutímum eftir að hún er samin og birt og án þess að hún hafi verið tekin fyrir í bæjarráði. Slík vinnubrögð ganga þvert gegn siðareglum og skyldu okkar til að hafa í heiðri gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku. Fram kom á fundi skipulagsnefndar í morgun að eitthvað af gögnunum séu ekki fullkláruð, sumar upplýsingar þar séu rangar og að fyrirhugað sé að nefndin fundi aftur um þetta mál í næstu viku. Það er því nokkuð augljóst að gefa þarf fólki meiri tíma til að skoða þetta áður en það er stokkið til að afgreiða þetta í bæjarstjórn. Stöndum vel og vandlega að verki í þessu máli eins og öðrum.

Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu um frestun málsins.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu um breytingu á aðalskipulagi.

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomnar tillögur.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomnar tillögur.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomnar tillögur.

Guðrún Elín Herbertsdóttir tók til máls að nýju.

Tillaga um frestun málsins er felld með 7 atkvæðum (SHJ,ÁHJ,GE,GVG,SG,SÞ,JS) gegn tveimur (HJ,GEH). Tveir sitja hjá (SE,MG).

Tillaga um að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns var samþykkt með átta atkvæðum (SHJ,ÁHJ,GE,GVG,SG,SÞ,JS,SE). Tveir greiddu atkvæði gegn tillögunni (HJ,GEH), MG situr hjá.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 að lokinni forkynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla sem sett er fram í greinargerð við tillöguna. Breytingartillagan gerir ekki kröfu um breytingu á svæðisskipulagi fyrir höfðuborgarsvæðið. Forkynning tillögunnar var auglýst 11.desember og stóð hún til 6.janúar. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu var forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Haldinn var sérstakur kynningarfundur fyrir rekstaraðila í Kauptúni. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Að verslunar- og þjónustusvæðið Kauptún verði afmarkað með sama hætti og í gildandi deiliskipulagi. Mörk landnotkunarreitsins færast við það lítillega til austurs upp í reit U-3 og reiturinn U-1 verður 27,5 h í stað 26,3. Reitur U-3 minnkar að sama skapi.
Að heildarbyggingarmagn svæðisins verði aukið úr 61.200 m2 í 73.000 m2. Nýtingarhlutfall hækkar við það úr 0.23 í 0.27.
Að kröfur um bílastæði verði felldar út og að þær verði ákveðnar í deiliskipulagi.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa á meðan á forkynningu stóð. Flestar ábendingar varða tillögu að breytingu deiliskipulags og hefur þeim verið vísað til skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Skipulagsnefnd samþykkir að leggja til, að ábendingu Rekstrarfélag Kauptúns, að auka byggingarmagn í 80.000 m2 eða sem nemur um 7.000 m2 miða við þá tillögu sem kynnt var. Með þeirri aukningu er gætt jafnræðis gagnavart lóðarhöfum á svæðinu til að auka byggingarmagn á einstaka lóðum enda heimila ákvæði um bílastæði þá aukningu.
Skipulagsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns verði auglýst eins og mælt er fyrir um í 1. mgr. 31.gr. skipulagslaga en áður skal tillagan send til athugunar hjá Skipulagsstofnun samkvæmt 3.mgr.30.gr. sömu laga.
Súsanna Björk Vilhjálmsdóttir, sat hjá við afgreiðslu málsins og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð telur að fyrirvari til að kynna sér gögn sem tengjast breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns sé of stuttur til að hægt sé að taka almennilega aftöðu til málsins að svo stöddu. Mikið magn ítarlegra gagna er varða málið voru fyrst aðgengileg í fundargátt á miðvikudagsmorgni, aðeins einum sólarhring fyrir fund skipulagsnefndar. Það getur ekki talist til eðlilegra og lýðræðislegra vinnubragða að taka eigi fyrir fundargerð skipulagsnefndar í bæjarstjórn aðeins nokkrum klukkutímum eftir að hún er samin og birt. Gefa þarf bæjarfulltrúum meiri tíma til að skoða gögnin svo betur megi taka tillit til athugasemda eins og umferðarmála. Stöndum vel og vandlega að verki í þessu máli eins og öðrum.“

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

18. (782). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

18. (782). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um kynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns. Auk þess að kynna tillöguna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2,3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Bæjarráð Garðabæjar

09

46. (1714). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um kynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns. Auk þess að kynna tillöguna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2,3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Kauptúns. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur að breytingu deiliskipulags. Lögð fram fundargerð frá fundi í stjórn Rekstrarfélags Kauptúns þann 20.nóvember sl þar sem kröfur um bílastæði og reynsla af nýtingu þeirra voru til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan sé forkynnt í samræmi við 2.mgr. 30.gr. Skipulagslaga með þeim breytingum sem breytingartillögur nefndarinnar á tillögum að breytingum deiliskipulags kalla á. Tillagan skal kynnt samhliða tillögum að breytingu deiliskipulags Kauptúns sbr fundarliði hér á eftir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til verslunar-og þjónustusvæðis í Kauptúni. Halldóra Hreggviðsdóttir ráðgjafi hjá Alta kynnti minnisblað yfir fyrirhugaðar deiliskipulagsbreytingar sem kalla á breytingu aðalskipulags.
Breytingartillagan er kynnt samhliða tillögum að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðanna Kauptún 1, 2 og 3.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

15. (779). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

15. (779). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

15

39. (1707). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

16

35. (1703). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og meðferðar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl