Beint í efni

31. (1699). fundur

18.08.2015
Bæjarráð Garðabæjar

31. (1699). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

18.08.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1506048

01

Opnun tilboða í hljóðvarnir við Silfurtún

Lögð fram eftirfarandi tilboð í hljóðvarnir við Silfurtún.

Kraftbindingar ehf. kr. 119.514.100

K ehf. kr. 79.099.600

Stálborg ehf. kr. 81.851.191

HK verktakar ehf. kr. 107.471.160

Sumargarðar ehf. kr. 69.110.550

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda Sumargarða ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins.

Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508140

02

Ársskýrsla leikskóla 2014 - 2015

Lögð fram. Vísað til umfjöllunar í leikskólanefnd Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503022

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóða við Breiðakur, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir að breyta 2. hæða raðhúsum við vestanverðan Breiðakur í 2. hæða fjölbýlishús og fjölga íbúðum úr 8 í 16. Athugasemdir bárust við tillöguna frá íbúum í Breiðakri og Dalakri og hefur verið tekin afstaða til þeirra. Athugasemdum verður svarað.

Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502269

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, vegna skólalóðar Sjálandsskóla, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir stækkun skólalóðar Sjálandsskóla og bættri aðkoma frá Löngulínu. Athugasemd barst við tillöguna frá stjórn húsfélagsins við Löngulínu 2 og leggur skipulagsnefnd til að tekið verði tillit til hennar með ákvæði um girðingu eða gróðurbelti á lóðarmörkum frá Löngulínu að Hraunsholtslæk. Athugasemd verður svarað.

Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1411157

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 27, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1411153

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 - 43, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 41 - 43 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10, á hvorri lóð, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507027

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Klettás 2, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ása í tilefni umsóknar um byggingu á steinsteyptu garðhýsi á lóðinni við Klettás 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505149

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 25, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits vegna viðbyggingar á lóðinni við Sunnuflöt 25, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Umsóknin skal grenndarkynnt eigendum Sunnuflatar 23, 26, 27, 28, 30 og Markaflatar 24, og 26.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507165

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar um gerð nýs deiliskipulags í Urriðaholti, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að um að við gerð nýs deiliskipulag í Urriðaholti skuli deiliskipulagsvæðið stækkað þannig að það nái til alls háholtsins, viðskiptahverfisins og það svæði sem ekki hefur verið skipulagt í norðurhluta samkvæmt rammaskipulagi Urriðaholts frá árinu 2006. Bæjarráð tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar um að við vinnslu skipulags fyrir svæðin beri að gera ráð fyrir íþróttasvæði sem nýtist íbúum í Urriðaholti.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503260

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna byggingarleyfisumsóknar við Holtsbúð 91, dags. 13.08.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila afgreiðslu umsóknar byggingarleyfis án grenndarkynningar á grundvelli 2. ml. 3. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, þar sem um er að ræða framkvæmd sem varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins eða umsækjanda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508156

11

Bréf mannauðsstjóra um umsókn Fanneyjar Ófeigsdóttur um styrk til að stunda framhaldsnám, dags. 14.08.15.

Bæjarráð samþykkir umsókn Fanneyjar Ófeigsdóttur, kennara við leikskóladeild Flataskóla um styrk til að stunda framhaldsnám á háskólastigi og nemur styrkurinn 10% afslætti af vikulegri vinnuskyldu.

Málsnúmer 1508157

12

Bréf Kvennakórs Garðabæjar vegna umsóknar um styrk vegna þátttöku í kórakeppni, dags. 10.08.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508158

13

Bréf framkvæmdastjóra Golfklúbbsins Odds, vegna vatnsmála á Urriðavelli, dags. 12.08.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs og til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508159

14

Bréf lögfræðiþjónustu Sigurðar Sigurjónsssonar hrl. vegna skipulagsmála í landi Akrakots og Breiðabólsstaða, dags. 05.08.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við gerð nýs aðalskipulags fyrir sameinað sveitarfélag.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508161

15

Bréf eigenda Hólmatúns 42 og 44 vegna frágangs á Bökkum vestan Hólmatúns og Sjávargötu, dags. 11.08.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra til nánari skoðunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1409324

16

Viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun 2015 vegna Ísafoldar, hjúkrunarheimils.

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2015 vegna rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis. Viðaukinn er tilkomin þar sem við fjárhagsáætlun var ekki gert ráð fyrir rekstri Ísafoldar, hjúkrunarheimilis nema til 31. ágúst 2015.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5 kr. 23.283.552 Ísafold, hjúkrunarheimili-almennur rekstur

Ofangreindum viðauka nr. 5 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 23.283.552.

Fylgiskjöl