Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 1507165

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36. (1753). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3.áfanga að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.júní til 9.september. Forkynning tillögnnar fór fram frá 21.mars til 11.apríl. Engar athugasemdir bárust.
Lögð fram beiðni deiliskipulagshöfundar um smávægilegar breytingar á tillögunni varðandi ákvæði um rafmagnsskápa,mengað ofanvatn og staðsetningu spennistöðvar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið samkvæmt 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindum breytingum sem eru óverulegar og kalla ekki á endurauglýsingu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (792). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (792). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

05

20. (1737). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3. Tillagan er unnin af Alta ehf, Landslagi ehf og Arkís ehf á vegum landeigenda í samvinnu við Garðabæ. Tillagan var í forkynningu frá 21.mars til 11.apríl sl. Haldinn var kynningarfundur á meðan forkynningu stóð. Tillagan er í fullu samræmi við aðalskipulag og rammaskipulag. Engar ábendingar bárust á meðan á forkynningu stóð.

Deiliskipulagið, sem nær til 9 ha svæðis, gerir ráð fyrir að hámarki 327 íbúðum í fjölbýli (3-5 hæðir) og rað- og parhúsum (1-2 hæðir), af mismundandi stærð í blandaðri byggð sem getur hentað fyrir alla aldurshópa. Við Urriðaholtsstræti verða fjölbýlishús með atvinnutengdri starfsemi á neðstu hæð sem snýr að götunni.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

6. (789). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna nýtt deiliskipulag 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts fyrir íbúum og hagsmunaðilum með auglýsingu og á almenum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að lokinni kynningu skal tillagan lögð fram til meðferðar í sveitarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

08

9. (1726). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verði kynnt íbúum og hagsmunaðilum með auglýsingu og á almenum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að lokinni kynningu skal tillagan lögð fram til meðferðar í sveitarstjórn.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipuilagi Urriðaholts Norðurhluta 3. Tillagan er unnin af Alta ehf, Landslagi ehf og Arkís ehf á vegum landeigenda í samvinnu við Garðabæ. Þráinn Hauksson landlagsarkitetk, Egill Guðmundsson arkitekt og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur gerðu grein fyrir tillögunni. Viðstaddur var Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf.
Tillagan er í fullu samræmi við aðalskipulag og rammaskipulag.

Deiliskipulagið, sem nær til 9 ha svæðis, gerir ráð fyrir að hámarki 327 íbúðum í fjölbýli (3-5 hæðir) og rað- og parhúsum (1-2 hæðir), af mismundandi stærð í blandaðir byggð sem getur hentað fyrir alla aldurshópa. Við Urriðaholtsstræti verð fjölbýlishús með atvinnutengdri starfsemi á neðstu hæð sem snýr að götunni.

Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði í grein 4.6.10 um smáhýsi verði breytt og að hámarksstæðr verði 10 m2 í stað 15 m2.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.greinar Skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

16. fundur

Fulltrúar Urriðaholts ehf, Jón Pálmi Guðmundsson, Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta og Egill Guðmundsson hjá Arkís kynntu drög að deiliskipulagi Urriðaholts Urriðaholtsstrætis-Háholts.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

14. (778). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

14. (778). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lýsingu vegna tillögu að nýju deiliskipulagi í Urriðaholti (háholt, viðskiptastræti o.fl.) þar sem fram koma helstu áherslur, upplýsingar um forsendur og fyrirhugað skipulagsferli, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal send Skipulagsstofnun til umsagnar og kynnt almenningi. Ingvar Arnarson, situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

13

36. (1704). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lýsingu vegna tillögu að nýju deiliskipulagi í Urriðaholti (háholt, viðskiptastræti o.fl.) þar sem fram koma helstu áherslur, upplýsingar um forsendur og fyrirhugað skipulagsferli, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal send Skipulagsstofnun til umsagnar og kynnt almenningi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

11. fundur

Lögð fram lýsing á deiliskipulagsgerð 9 ha svæðis á háholti Urriðaholts og efsta svæðið Urriðaholtsstrætir að sunnanverðu.
Lýsingin hefur verið unnin á vegum landeiganda.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. 40.gr. Skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

15

31. (1699). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að um að við gerð nýs deiliskipulag í Urriðaholti skuli deiliskipulagsvæðið stækkað þannig að það nái til alls háholtsins, viðskiptahverfisins og það svæði sem ekki hefur verið skipulagt í norðurhluta samkvæmt rammaskipulagi Urriðaholts frá árinu 2006. Bæjarráð tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar um að við vinnslu skipulags fyrir svæðin beri að gera ráð fyrir íþróttasvæði sem nýtist íbúum í Urriðaholti.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

10. fundur

Lagt fram erindi Halldóru Hreggviðsdóttur framkvæmdastjóra Alta fyrir hönd Urriðaholts ehf þar sem óskað er eftir heimild til þess að vinna tillögu að deiliskipulagi skv. meðfylgjandi drögum að skipulagslýsingu. Lýsing gerir ráð fyrir því að svæðið sem deiliskipulagið nái til sé 7 ha að stærð og nær til efsta hluta "norðurhluta", hluta af "viðskiptahverfis" og hluta af "háholti".
Skipulagsnefnd mælist til þess að það deiliskipulag sem nú skal vinna nái til þess sem eftir er af "viðskiptahverfi" og "háholti" auk þess sem eftir er af "norðurhluta". Einnig skal gera ráð fyrir íþróttasvæði innan deiliskiplagssvæðisins sem nýtist íbúum hverfisins en til þessa hefur ekki verið gert ráð fyrir íþróttasvæðum.

Bæjarráð Garðabæjar

17

29. (1697). fundur

Bæjarráð samþykkir að heimila landeiganda að vinna að deiliskipulagi landsvæðis í Urriðaholti á sinn kostnað samkvæmt heimild í 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um stækkun deiliskipulagsvæðis í samræmi við markmið og áfangaskiptingu samkvæmt rammaskipulagi.

Bæjarráð vísar vinnu við gerð skipulagsins til frekari meðferðar skipulagsnefndar en um kynningu, samráð, auglýsingu og samþykkt deiliskipulags fer samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl