Beint í efni

16. fundur

12.11.2015
Skipulagsnefnd Garðabæjar

16. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

12.11.2015

Kl. 08:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1507165

01

Urriðaholt - nýtt deiliskipulag (hluti - norðurhl.,viðskiptastr.,háholt)

Fulltrúar Urriðaholts ehf, Jón Pálmi Guðmundsson, Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta og Egill Guðmundsson hjá Arkís kynntu drög að deiliskipulagi Urriðaholts Urriðaholtsstrætis-Háholts.

Málsnúmer 1302243

02

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Aðalskipulagsráðgjafar frá Teiknistofu arkitekta, Landmótun og Eflu kynntu þá valkosti sem greidir hafa verið við úrvinnslu aðalskipulags.

Boðað hefur verið til íbúafunda 25. og 26.nóvember næstkomandi. Einnig 1.desember vegna opinna svæða og á sama fundi verður kynnt tillaga að deiliskipulagi Heiðmerkur sem nú er í forkynningu.