36. (1704). fundur
36. (1704). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
22.09.2015
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Umsókn um byggingarleyfi -Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna stækkunar á 1. hæð og minniháttar breytingum á byggingu golfskála GKG.
Fylgiskjöl
02
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um drög frumvarps um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til umsagnar, dags. 15.09.15.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag í Urriðaholti, dags. 12.09.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lýsingu vegna tillögu að nýju deiliskipulagi í Urriðaholti (háholt, viðskiptastræti o.fl.) þar sem fram koma helstu áherslur, upplýsingar um forsendur og fyrirhugað skipulagsferli, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal send Skipulagsstofnun til umsagnar og kynnt almenningi.
Fylgiskjöl
05
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi tímabundna breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.09.15.
06
Tillaga um að skipa starfshóp til að vinna að ljósleiðaravæðingu
Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp embættismanna til að vinna að bættu aðgengi heimila, stofnana og fyrirtækja að tengingu við ljósleiðara og auka val á hagkvæmri þjónustu því samfara.
Starfhópinn skulu skipa: bæjarverkfræðingur, upplýsingarstjóri, þjónustustjóri og deildarstjóri tölvudeildar.
Bæjarráð samþykkir að fela starfshópnum að taka sama minnisblað um stöðu málins sem lagt verði fram í bæjarráði í byrjun október.
Fylgiskjöl
07
Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um drög að þingsályktunartillögu um fjölskyldustefnu til ársins 2020, dags. 17.09.15.
08
Bréf Rauða krossins um skyndihjálpanámskeið fyrir bæjarstjórn, dags. 25.08.15.
Bæjarráð þakkar Rauða Krossinum fyrir frumkvæði í málinu og felur bæjarstjóra að skipuleggja námskeið í skyndihjálp fyrir bæjarfulltrúa.
Fylgiskjöl
09
Umsókn Ágústu K. Steinarsdóttur um styrk til að stunda framahldsnám á háskólastigi, dags. 01.09.15.
Bæjarráð samþykkir umsókn Ágústu Kristínar Steinarsdóttur, kennara við Hofsstaðskóla, um styrk til að stunda framhaldsnám á háskólastigi og nemur styrkurinn 10% afslætti af vikulegri vinnuskyldu.