9. (1726). fundur
9. (1726). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
08.03.2016
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1512038
01
Minnisblað KPMG varðandi reikningsskilaleg meðferð leigusamnings um húsnæði hjúkrunarheimilis, dags. 18.02.16.
Á fund bæjarráðs komu Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi bæjarins og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri. Magnús gerði grein fyrir minnisblaði varðandi reikningsskilalega meðferð leigusamnings um hjúkrunarheimili.
Í minnisblaðinu er gerður samanburður á áhrifum þess að færa fasteign hjúkrunarheimilisins við Strikið 3 til eignar meðal varanlegra rekstrarfjármuna í B-hlutasjóði á kostnaðarverði og afskriftir og leigutekjur af eigninni í rekstrarreikning eða sem leigueign. Í tilviki leigueignar er samningur um leigu fasteignarinnar færður til eignar í efnahagsreikningi sem langtímakrafa og verðbættar leigugreiðslur færðar til tekna sem fjármagnstekjur. Í ársreikningi Garðabæjar hefur fasteignin verið færð meðal varanlegra rekstrarfjármuna.
Samkvæmt ofangreindum samanburði hefur leiguleiðin jákvæð áhrif á niðurstöðu rekstrarreikning Garðabæjar árin 2013 og 2014.
Bæjarráð samþykkir að tekin verði afstaða með viðauka á árinu 2016 til þess hvort breytt verði um reikningsskilaaðferð og leigusamningur um hjúkrunarheimilið færður til eignar í efnahagsreikningi sem lagtímakrafa.
Málsnúmer 1511035
02
Búðarflöt 3 - byggingarleyfi viðbygging.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar sólskála við einbýlishúsið við Búðarflöt 3.
Málsnúmer 1512258
03
Mosagata 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar fjölbýlishúss með 22 íbúðum við Mosagötu 1 ? 3.
Málsnúmer 1511180
04
Holtsvegur 9-13 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar fjölbýlishúss með 31 íbúð við Holtsveg 9-13.
Málsnúmer 1602389
05
Byggakur 11-19 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar 5 íbúða raðhúss við Byggakur 11-19.
Málsnúmer 1602388
06
Byggakur 12-20 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar 5 íbúða raðhúss við Byggakur 12-20.
Málsnúmer 1507165
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi forkynningu deiliskipulags 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verði kynnt íbúum og hagsmunaðilum með auglýsingu og á almenum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að lokinni kynningu skal tillagan lögð fram til meðferðar í sveitarstjórn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603023
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Víkurgötu og Keldugötu
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1602395
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða við Mosagötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 3 í 5 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601425
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða við Kinnargötu 19-25.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 19-25. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 4 í 5. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1603026
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á húsnúmeri Hellugötu 31.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að númer lóðarinnar við Hellugötu 31 breytist og verði Hellugata 15.
Málsnúmer 1603028
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Hraungötu.
Lögð fram.
Málsnúmer 1603027
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 9-13.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 9-13 þar sem farið er fram á fjölgun minni íbúða um þrjár án þess að fylgi bílastæði í kjallara.
Málsnúmer 1602391
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dyngjugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dyngjugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 16 í 18. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1510158
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 22 í 25. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603013
16
Bréf Yrkjusjóðs um styrk, dags. 26.02.16.
Málsnúmer 1603029
17
Framlög til stjórnmálaflokka 2016
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2016.
Framsóknarflokkur kr. 231.301
Sjálfstæðisflokkur kr. 2.058.576
Björt framtíð kr. 517.798
Samfylking kr. 346.951
Fólkið í bænum kr. 345.374
Samtals: kr. 3.500.000
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505136
18
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu stjórnar Hönnunarsafns Íslands að stefnumótun til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1601395
19
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrkbeiðni Álftaneskórsins.
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Álftaneskórnum styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna vortónleika og undirbúnings ferðar kórsins til Dublinar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510222
20
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi samstarfssamning við Kvennakór Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar. Samningurinn skal gerður til næstu þriggja ára og skal árlegt framlag nema kr. 2.000.000.
Bæjarstjóra falin afgreiðsla málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503196
21
Afgreiðsla styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016.
Afgreiðsla
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 300.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000
Málsnúmer 1603067
22
Minnisblað fræðslu- og menningarsviðs um starfsemi tómstundaheimila, dags. 01.03.16.
Bæjarráð samþykkir tillögur fræðslu- og menningarsviðs um að fallið verði frá viðmiði um að forstöðumaður sinni 12 börnum á tómstundaheimilum samhliða umsjónarstörfum.
Bæjarráð vísar ákvörðun um starfsdaga vegna fræðslu, símenntunar og samráðs til umfjöllunar skólanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503196
23
Lántaka samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tilboðum frá eftirfarandi aðilum í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði.
Arctica Finance, Arion banka, Íslandsbanka og Kviku banka.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Arion banka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603033
24
Boðun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 2016
Lagt fram fundarboð 30. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram mun fara í Reykjavík 8. apríl nk.
Málsnúmer 1603055
25
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 32. mál, dags. 02.03.16.
Málsnúmer 1505094
26
Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi fyrir veitingastað í golfskála GKG.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1603061
27
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara um nýjan frest kennara til að afsala sér kennsluafslætti, dags. 01.03.16.
Málsnúmer 1512145
28
Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog
Lagðar fram umsóknir frá eftirfarandi aðilum um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Ingvar og Kristján ehf.
Klettás fasteignir ehf.
Óstofnað einkahlutafélag (Arnarvogur ehf.)
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við umsækjendur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509185
29
Tillaga um endurskoðun reglna um launalaus leyfi starfsmanna Garðabæjar
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingum á reglum Garðabæjar um launalaus leyfi starfsmanna.
Málsnúmer 1602380
30
Erindi hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda 2016.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 1.888.293 til greiðslu fasteignagjalda árið 2016.
Málsnúmer 1601172
31
Bréf RT og GÁ varðandi álagningu fasteignagjalda á húsnæði við Garðaflöt 14-16, dags. 08.01.16.
Bæjarritari gerði grein fyrir niðurstöðu í dómi Hæstaréttar og úrskurðum yfirfasteignamatsnefndar í sambærilegum málum þar sem komist er að niðurstöðu í tilteknum málum að skattleggja beri húsnæði sem íbúðarhúsnæði, í samræmi við notkun, en ekki sem atvinnuhúsnæði eins og skráningu þess er háttað.
Með vísan til niðurstöðu í tilvitnuðum málum verður að fallast á kröfu bréfritara um endurálagningu fasteignagjalda enda telst sannað að umrætt húsnæði er notað sem íbúðarhúsnæði.
María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1601548
32