Bréf RT og GÁ varðandi álagningu fasteignagjalda á húsnæði við Garðaflöt 14-16, dags. 08.01.16.
Málsnúmer 1601172
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (1726). fundur
Bæjarritari gerði grein fyrir niðurstöðu í dómi Hæstaréttar og úrskurðum yfirfasteignamatsnefndar í sambærilegum málum þar sem komist er að niðurstöðu í tilteknum málum að skattleggja beri húsnæði sem íbúðarhúsnæði, í samræmi við notkun, en ekki sem atvinnuhúsnæði eins og skráningu þess er háttað.
Með vísan til niðurstöðu í tilvitnuðum málum verður að fallast á kröfu bréfritara um endurálagningu fasteignagjalda enda telst sannað að umrætt húsnæði er notað sem íbúðarhúsnæði.
María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (1718). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.