Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna nr. 4 og 13 við Víkurgötu og nr. 2 við Keldugötu. verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðanna Víkurgata 4 og 13 og Keldugata 2.
Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitir stækka þannig að auðveldara verði að laga byggingar á lóðinni með tilliti til jarðsprungu sem gengur í gegnum lóðirnar.
Tillagan var í kynningu frá 2. maí til 13. júní. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (789). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (1726). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðanna Víkurgata 4 og 13 og Keldugata 2.
Tillgan gerir ráð fyrir því að byggingarreitir stækka þannig að auðveldara verði að laga byggingar að legu jarðsprungu sem gengur í gegnum lóðirnar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.