5. fundur
5. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
03.03.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Urriðaholt - nýtt deiliskipulag (hluti - norðurhl.,viðskiptastr.,háholt)
Lögð fram tillaga að deiliskipuilagi Urriðaholts Norðurhluta 3. Tillagan er unnin af Alta ehf, Landslagi ehf og Arkís ehf á vegum landeigenda í samvinnu við Garðabæ. Þráinn Hauksson landlagsarkitetk, Egill Guðmundsson arkitekt og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur gerðu grein fyrir tillögunni. Viðstaddur var Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf.
Tillagan er í fullu samræmi við aðalskipulag og rammaskipulag.
Deiliskipulagið, sem nær til 9 ha svæðis, gerir ráð fyrir að hámarki 327 íbúðum í fjölbýli (3-5 hæðir) og rað- og parhúsum (1-2 hæðir), af mismundandi stærð í blandaðir byggð sem getur hentað fyrir alla aldurshópa. Við Urriðaholtsstræti verð fjölbýlishús með atvinnutengdri starfsemi á neðstu hæð sem snýr að götunni.
Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði í grein 4.6.10 um smáhýsi verði breytt og að hámarksstæðr verði 10 m2 í stað 15 m2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.greinar Skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
02
Sprungulóðir við Víkurgötu og Keldugötu
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðanna Víkurgata 4 og 13 og Keldugata 2.
Tillgan gerir ráð fyrir því að byggingarreitir stækka þannig að auðveldara verði að laga byggingar að legu jarðsprungu sem gengur í gegnum lóðirnar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
03
Keldugata,skoðun.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir þeim úrlausnarefnum sem staðið er frammi frammi fyrir varðandi uppbyggingu fjölbýlishúsa við Keldugötu.
Vísað til frekari úrvinnslu á tækni- og umhverfissviði.
04
Mosagata 2, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu fjölgi úr 3 í 5 og að gert verði ráð fyrir bílastæðum inni á lóðinni.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
05
Mosagata 9-27, dsk br.
Lögð fram hugmynd um breytingar á legu fjölbýlishúsa á lóð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
06
Kinnargata 19-25 - dsk breyting auka íbúð
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar á Kinnargata 19-25. Tillagn gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 4 í 6. Skipulagsnefnd telur að ekki sé svigrúm til að fjölga nema um eina íbúð vegna bílastæða.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga með þeirri breytingu að íbúðum fjölgi úr 4 í 5.
07
Kinnargata 27, dsk br Vesturhluti Urriðaholts
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til fjölbýlishúslóðarinnar Kinnargata 27. Gert er ráð fyrir að íbúðum fjölgi úr 6 í 8.
Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Nauðsynlegt er að nefndin átti sig betur á útfærslu byggingarinnar.
08
Holtsvegur 45-47, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskiulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 45-47 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 9 í 10. Sú íbúð sem óskað er eftir því að bæta við er á 2.hæð en liggur að þaki á bílageymslu sem er grænt svæði á lóð. Skipulagsnefnd telur að þó að umrædd íbúð sé ekki á jarðhæð frá götu séð þá sé það kostur að boðið verði upp á minni íbúð og kemur í veg fyrir að umrædd rými verði hugsanlega nýtt sem ósamþykkt íbúð.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
09
Hellagata 31, húsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu um breytingu á húsnúmeri þannig að hús númer 31 verði númer 15 og metur hana sem frávik frá deiliskipulagi í samræmi við 3.mgr.43.gr.Skipulagslaga.
10
Hraungata 7 og 11, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn um hugsanlegar breytingar á lóðunum Hraungata 7 og Hraungata 11. Svar: Á lóð Hraungötu 7 þar sem spurt er hvort heimilað verði að fjölga íbúðum úr 10 í 14 er ekki unnt að verða við fjölgun í ljósi fyrri breytinga sem gerðar voru á lóðinni.
Fyrirspurn um Hraungötu 11 er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
11
Holtsvegur 9-13, dsk br bílastæði
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 þar sem gerir ráð fyrir að íbúðum minni en 80 m2 fjölgi um 3 og fækkun bílastæða í bílakjallara sem því nemur.
Tillögunni er hafnað.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
12
Brekkugata 1-3, dsk br. Norðursvæði Urriðaholt
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 5 úr 22 í 27. Þá yrðu 5 íbúðir á jarðhæð.
Skipulagsnefnd leggur til að fjölgað verði um 3 íbúðir gegn því skilyrði að 4 íbúðir verði á jarðhæð en 7 á öðrum hæðum.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar með ofnagreindri breytingu í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
13
Dyngjugata 1-3, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 2 úr 16 í 18.
Skipting tveggja íbúða sem voru á tveimur hæðum í tvennt þannig að séríbúðir verði á jarðhæð sem snýr að götutorgi hefur jákvæð áhrif á yfirbragð götutorgsins.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.