Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47.

Málsnúmer 1602367

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 45-47 við Holtsveg verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10 eða um 1.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskiulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 45-47 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 9 í 10.
Tillagan var í kynningu frá 2.maí til 13.júní. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það.
Gjaldið er greitt við útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

6. (789). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 9 í 10 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (1727). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 9 í 10 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskiulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 45-47 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 9 í 10. Sú íbúð sem óskað er eftir því að bæta við er á 2.hæð en liggur að þaki á bílageymslu sem er grænt svæði á lóð. Skipulagsnefnd telur að þó að umrædd íbúð sé ekki á jarðhæð frá götu séð þá sé það kostur að boðið verði upp á minni íbúð og kemur í veg fyrir að umrædd rými verði hugsanlega nýtt sem ósamþykkt íbúð.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.