10. (1727). fundur
10. (1727). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.03.2016
Kl. 08:00 - 09:55
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1512038
01
Ársreikningur Garðabæjar 2015.
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.
Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2015, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2015 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 17. mars og síðari umræða 7. apríl 2016.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510324
02
Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss á lóðinni við Hraungötu 12.
Málsnúmer 1602367
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 9 í 10 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1512176
04
Minnisblað skjalastjóra um stöðu skjalamála hjá Garðabæ, dags. 11.03.16.
Málsnúmer 1603103
05
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um málefni aldraðra 352. mál., dags. 07.03.16.
Málsnúmer 1603132
06
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skilyrðislausa grunnframfærslu(borgarlaun) 354. mál., dags. 08.03.16.
Lagt fram.
Málsnúmer 1603133
07
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfisins, dags. 08.03.16.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja aðild að samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis, enda verði aðild að verkefninu samþykkt af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603135
08
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfsamning um verkefnið Fluglestin, dags. 08.03.16.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja aðild að samstarfsamningi um verkefnið „Fluglestin“, enda verði samningurinn samþykktur af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við aðalskipulag.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603160
09
Bréf Helgu Kristjánsdóttur um námsleyfi, dags. 08.03.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umsagnar fræðslu- og menningarsviðs.
Málsnúmer 1603177
10
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um námsferð til kynningar á íbúalýðræði í sænskum sveitarfélögum, dags. 08.03.16.
Málsnúmer 1603178
11
Bréf skólastjórnenda í Garðabæ varðandi áskorun til stjórnvalda um bætt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga, dags. 04.03.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs, leikskólanefndar og skólanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512294
12
Staða mála varðandi samninga við ríkið um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísafoldar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi viðræður við velferðarráðuneytið um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísafoldar.
Lagt fram yfirlit um samskipti við velferðarráðuneytið en ráðuneytið hefur ekki boðað til fundar um málið til að ræða um efni og frágangs samnings síðan 15. febrúar sl. þrátt fyrir ítrekaða beiðni lögmanns bæjarins.
Bæjarráð telur framkomu ráðuneytisins í málinu óásættanlega og felur bæjarstjóra að leita aðstoðar innanríkisráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og umboðsmanns Alþingis til að tryggja framgang málsins í samræmi við sameiginlega niðurstöðu aðila á fundi í ráðuneytinu í desember sl. um yfirtöku ríkisins á rekstri Ísafoldar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603180
13
Ársskýrsla Skátafélagsins Vífils 2015 ásamt starfsáætlun 2016-2017
Málsnúmer 1503196
14
Verkefni þjónustumiðstöðvar og fyrirkomulag innkaupa á vörum og þjónustu.
Bæjarverkfræðingur kynnti hugmyndir að gerð stefnu um innkaup á þjónustu á vegum þjónustumiðstöðvar og eignasjóðs. Á mörgum sviðum hafa verkefni verið boðin út svo sem snjómokstur, sláttur á opnum svæðum og framkvæmdir við gatnagerð, stíga og hljóðvarnarveggi.
Í undirbúningi er kanna nánar frekari útboð og gerð rammasamninga til 2-3 ára um þjónustukaup á sviði
viðhaldsþjónustu, tækjaleigu o.fl.
Málsnúmer 1602298
15
Samgöngustígur yfir Arnarneshæð - opnun tilboða.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við lóðar- og hljóðavarnargirðingar á göngu- og hjólreiðastíg yfir Arnarneshæð.
Skrauta ehf. kr. 37.000.000
Endalaus verk ehf. kr. 43.498.700
X - JB ehf. kr. 44.284.740
Markverk ehf. kr. 37.991.784
Stálborg ehf kr. 43.288.046
Steinhella ehf kr. 32.046.900
Öryggisgirðingar ehf kr. 58.715.719
Biggi ehf. kr. 76.061.500
Sumargarður ehf. kr. 47.157.960
Kostnaðaráætlun kr. 54.450.000
Lagt fram bréf lægstbjóðanda, Steinhellu ehf., dags. 10. mars 2016 þar sem farið er fram á að falla frá tilboði vegna mistaka í tilboðsgerð.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næstlægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Málsnúmer 1509343
16
Minnisblað VSÓ um ástand og framtíð gervigrasvalla í Garðabæ, dags. 08.03.16.
Lagt fram minnisblað VSÓ þar sem fram kemur mat á ástandi valla og kostnaðarmat vegna endurnýjunar á yfirborði þeirra.
Bæjarstjóra gerði grein fyrir viðræðum sínum við fulltrúa Stjörnuna um uppbyggingu á íþróttasvæði við Ásgarð.