Rekstur Ísafoldar - staða mála.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
32. (1749). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að í undirbúningi er að leggja fyrir bæjarráð viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna rekstrar Ísafoldar en í fjárhagsáætlun var einungis gert ráð fyrir starfsemi í þrjá mánuði árinu 2016. Samningar um yfirtöku ríkisins á rekstrinum hafa ekki gengið eftir þrátt fyrir að ráðuneytið hafa lýst því yfir í ársbyrjun að ríkið væri tilbúið til að taka yfir reksturinn.
Bæjarstjóri sagði frá því að unnið hafi verið að því að hagræða í rekstrinum og að leitað hafi verið til ráðgjafafyrirtækisins Nolta ehf. um úttekt á rekstrinum og gerð tillagna um frekari hagræðingu en fyrirtækið vann skýrslu fyrir Félag fyrirtækja í velferðarþjónustum um rekstur hjúkrunarheimila.
Bæjarráð Garðabæjar
02
15. (1732). fundur
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hafi ekki fjárheimildir til að hækka daggjöld Ísafoldar né hafi það heimildir til að taka yfir reksturinn.
Bæjarráð lýsir furðu á afstöðu ráðuneytisins sem er þvert á fyrri yfirlýsingar um að ráðherra hafi samþykkt að taka yfir reksturinn og falið starfmönnum ráðuneytisins að undirbúa málið í samstarfi við Garðabæ.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir úttekt sem nýlega hefur verið gerð á kostnaðarútreikningi á rekstri hjúkrunarheimila. Það eru helstu niðurstöður þær að daggjöld þurfi að hækka verulega miðað við þær kröfur sem gerðar eru um mönnum hjúkrunarheimila í ummönnunarmódeli Landlæknis.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
10. (1727). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi viðræður við velferðarráðuneytið um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísafoldar.
Lagt fram yfirlit um samskipti við velferðarráðuneytið en ráðuneytið hefur ekki boðað til fundar um málið til að ræða um efni og frágangs samnings síðan 15. febrúar sl. þrátt fyrir ítrekaða beiðni lögmanns bæjarins.
Bæjarráð telur framkomu ráðuneytisins í málinu óásættanlega og felur bæjarstjóra að leita aðstoðar innanríkisráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og umboðsmanns Alþingis til að tryggja framgang málsins í samræmi við sameiginlega niðurstöðu aðila á fundi í ráðuneytinu í desember sl. um yfirtöku ríkisins á rekstri Ísafoldar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (1719). fundur
Bæjarráð mótmælir því að ráðuneytið skuli án samráðs við Garðabæ tilkynna það einhliða að það geti ekki fallist á að yfirtakan á rekstrinum verði miðuð við 1. apríl 2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara fram á fund með ráðuneytinu án tafar.