2. (1719). fundur
2. (1719). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.01.2016
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1507224
01
Búðarflöt 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á lóðinni við Búðarflöt 2.
Málsnúmer 1601295
02
Búðarflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á lóðinni við Búðarflöt 4.
Málsnúmer 1601296
03
Búðarflöt 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á lóðinni við Búðarflöt 6.
Málsnúmer 1601259
04
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna vinnu um samræmda lóðaafmörkun, dags. 08.01.15.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga og felur bæjarstjóra að svara erindinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510181
05
Bréf SSH um tillögu stjórnar vegna samkomulags um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, dags. 12.01.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um að ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu starfi áfram á grundvelli samkomulags sveitarfélaganna frá því í maí 2014 sem felur í sér að Strætó bs. annist áfram þann hluta ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk sem lagt var upp með í þjónustulýsingu sem fylgdi samkomulaginu. Í ljósi fyrirliggjandi reynslu verða gerðar nauðsynlegar lagfæringar og breytingar á samkomulaginu, sameiginlegum reglum og þjónustulýsingu sem nánar er lýst í tillögunni.
Fylgiskjöl
- SSH_02_1501012_Minnisblað_FFF_tillaga_ad_stjornsyslul_fyrirk.lagi_2016_01_11_pg_v2.m.pdf
- SSH_02_FFF_Tillaga_Stjornsyslulegt_fyrirkomulag_2015_01_11_pg_v2.m.pdf
- SSH_02_Fundur_01082016_samráðshóps_SSH.pdf
- SSH_02_Lokaskýrsla_framkvæmdaráðs_ferðaþj.fatlaðs_fólks_13.12.2015.pdf
- FW: Erindi frá SSH til bæjarráðs Hafnarfjarðar
- SSH_Gardabaer_FFF_2016_01_12.pdf
Málsnúmer 1504011
06
Bréf Advel-lögmanna um svar Strætó bs við ávirðingum um brot gegn rammasamningi um akstur fatlaðs fólks, dags. 08.01.15.
Lagt fram.
Málsnúmer 1412147
07
Drög að samningi við Vegagerðina vegna framkvæmda við Arnarnesveg, dags. 14.01.15.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn sem gerir ráð fyrir að hlutdeild Garðabæjar í framkvæmdakostnaði verði 22,5 mkr eða sem nemur 2,9% af heildarkostnaði við framkvæmdina samkvæmt verksamningi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1511026
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2 og 3 við Kauptún og nýrri lóð fyrir dælustöð.
María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1308037
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509062
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar um umsókn um byggingarleyfi vegna svala við Lambhaga 6.
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna svala við Lambhaga 6.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512294
11
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi samning um yfirtöku ríkisins á rekstri Ísafoldar, dags. 08.01.16.
Bæjarráð mótmælir því að ráðuneytið skuli án samráðs við Garðabæ tilkynna það einhliða að það geti ekki fallist á að yfirtakan á rekstrinum verði miðuð við 1. apríl 2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara fram á fund með ráðuneytinu án tafar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601308
12
Bréf Lex-lögmannsstofu varðandi nýtingu á höfundarverki, dags. 11.01.15.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, hrl., að gæta hagsmuna bæjarins í málinu og vísar bréfinu til umfjöllunar í stjórn Hönnunarsafns Íslands.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503196
13
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt heimild í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga 4/1995 og 4. mgr. 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.
Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2014 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.
Hjón:
Hjón með tekjur árið 2014 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.