Afgreiðsla skipulagsnefndar um umsókn um byggingarleyfi vegna svala við Lambhaga 6.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (1719). fundur
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna svala við Lambhaga 6.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir svalir á efri hæð íbúðarhússins sem vísað var til grenndarkynningar þar sem húsið er á svæði án gildandi deiliskipulags. Engar athugasemdir hafa borist innan tilskilins frests. Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
15. (779). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsinu við Lambhaga 6, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
06
39. (1707). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi í hverfi sem ekki liggur fyrir deiliskipulag sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.