Arnarnesvegur
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (785). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samning við Vegagerðina um framkvæmd við Arnarnesveg sem gerir ráð fyrir að hlutdeild Garðabæjar í framkvæmdakostnaði verði 22,5 mkr eða sem nemur 2,9% af heildarkostnaði við framkvæmdina samkvæmt verksamningi.
Bæjarráð Garðabæjar
02
2. (1719). fundur
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn sem gerir ráð fyrir að hlutdeild Garðabæjar í framkvæmdakostnaði verði 22,5 mkr eða sem nemur 2,9% af heildarkostnaði við framkvæmdina samkvæmt verksamningi.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
9. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir þeim þáttum framkvæmda við lagningu Arnarnesvegar, milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar, sem eru innan bæjarmarka Garðabæjar. Um er að ræða framkvæmdir við hluta hringtorgs og lagningu stígs næst Reykjanesbrautinni.
Bæjarráð Garðabæjar
04
20. (1688). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir þeim þáttum framkvæmda við lagningu Arnarnesvegar, milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar, sem eru innan bæjarmarka Garðabæjar. Um er að ræða framkvæmdir við hluta hringtorgs og lagningu stígs næst Reykjanesbrautinni.$line$$line$Framkvæmdin í heild er matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og fyrir liggur úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 04.07.2003. $line$$line$Framkvæmdin telst þegar hafin með byggingu hringtorgs við Þorrasali í Kópavogi sem telst hluti heildarframkvæmdarinnar.$line$$line$Sameiginlegt deiliskipulag Kópavogsbæjar og Garðabæjar fyrir Arnarnesveg frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 26. febrúar 2009.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagning Arnarnesvegar milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Framkvæmd er í samræmi við deiliskipulag Arnarnesvegar. Framkvæmdasvæði nær að litlu leyti inn fyrir bæjarmörk Garðabæjar í norðanverðu Hnoðraholti. Skipulagsnefnd mælir með því að bæjarstjórn veiti framkvæmdaleyfið enda eru framkvæmdir hafnar á hluta verksins innan bæjarmarka Kópavogs.
Bæjarráð Garðabæjar
06
14. (1682). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til úrvinnslu tækni- og umhverfissviðs.