9. fundur
9. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju
04.06.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Sturla Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. maí 2015 er lögð fram.
Dagskrá
01
Kosning forseta bæjarstjórnar og tveggja varaforseta
Tillaga kom fram um Sigríði Huldu Jónsdóttur, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.$line$$line$Tillaga kom fram um Gunnar Val Gíslason, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.$line$$line$Tillaga kom fram um Jónu Sæmundsdóttur sem 2. varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, óskaði nýjum forseta til hamingju og velfarnaðar í starfi. Sturla þakkaði bæjarfulltrúum gott samstarf á vettvangi bæjarstjórnar undanfarið ár.$line$
02
Kosning fimm fulltrúa í bæjarráð og fimm til vara.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók við stjórn fundarins. Sigríður Hulda þakkaði bæjarfulltrúum traustið og hvatti þá til að ræða mál í bæjarstjórn á málefnalegan hátt með hagsmuni bæjarfélagsins að leiðarljósi. Sigríður Hulda þakkaði Sturlu fyrir vel unnin störf sem forseti bæjarstjórnar og þann góða tón er hann lagði áherslu á að ríkti í umræðu á fundum bæjarstjórnar.$line$$line$Fyrir fundinum lá tillaga um kosningu á eftirfarandi aðilum í bæjarráð.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður, Sigurður Guðmundsson, varaformaður, Sturla Þorsteinsson, Halldór Jörgensson og María Grétarsdóttir.$line$$line$Varamenn taka sæti í bæjarráði í þeirri röð sem þeir skipa sama lista og aðalfulltrúar.$line$$line$Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.$line$
03
Tilnefning áheyrnarfulltrúa í bæjarráð
Samfylkingin tilnefnir Steinþór Einarsson, sem áheyrnarfulltrúa í bæjarráð.
04
Fundargerð bæjarráðs frá 26/5 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., bréf SSH varðandi skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og óskaði eftir nánari upplýsingum um hvernig fyrirhugað er að standa að uppbyggingunni.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn og gerð grein fyrir hugmyndum um samstarf við aðila um byggingu og rekstur á heimilum fyrir fatlað fólk.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., bréf Stjörnunnar varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Ásgarði og vildi nota tækifærið til að þakka Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, fyrir fórnfús störf í þágu Stjörnunnar á liðnum árum en Jóhann lét af formennsku á síðasta aðalfundi félagsins. Sigurður óskaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og beindi því til formanns fjölskylduráðs að taka málið á dagskrá ráðsins.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, ræddi 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og greindi frá að fyrirhugað er að ræða málið í fjölskylduráði.$line$$line$Baldur Ó Svavarsson, ræddi 8. tl., bréf Stjörnunnar varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Ásgarði. Baldur tók undir þakkarorð í garð Jóhanns Steinars og góða óskir til nýrrar stjórnar. Baldur ræddi 11. tl., sölutilboð eigenda Hofsstaða.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 11. tl., sölutilboða eigenda Hofsstaða.$line$$line$$line$Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.$line$
4.1 - 1412147 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Arnarnesveg, dags. 22.5.2015.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir þeim þáttum framkvæmda við lagningu Arnarnesvegar, milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar, sem eru innan bæjarmarka Garðabæjar. Um er að ræða framkvæmdir við hluta hringtorgs og lagningu stígs næst Reykjanesbrautinni.
Fylgiskjöl
4.4 - 1308037 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi, dags 22.5.2015.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hliðs verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
4.5 - 1310283 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Strikið 1-3, breyting á deiliskipulagi, dags 22.5.2015.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 verði auglýst að nýju samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.
Fylgiskjöl
4.6 - 1504287 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Unnargrund, breyting á dsk Ása og Grunda, dags. 22.5.2015.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna byggðar eldri borgara við Unnargrund verði auglýst til kynningar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.
Fylgiskjöl
05
Fundargerð bæjarráðs 2/6 ´15.
Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og þakkaði jákvæðar undirtektir og lýsti ánægju með að tillögunni hafi verið vísað til umfjöllunar skólanefndar.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu á hugmyndum um fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og 5. tl., útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., kynningu á hugmyndum um fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 5. tl., útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., drög að samningi um kaup á húsnæði fyrir safnaðarheimili Bessastaðasóknar og gerði grein fyrir endanlegum texta ásamt yfirlýsingu um kvöð.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samning við Bessastaðasókn um framlag vegna kaupa á húsnæði fyrir safnaðarheimili að Brekkuskógum 1. Kaupverðið er kr. 57.000.000 og er framlag Garðabæjar kr. 18.000.000 og verður það greitt með þremur jöfnum greiðslum á árunum 2016 - 2018. María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.$line$
5.7 - 1505203 - Drög að samningi um kaup á húsnæði fyrir safnaðarheimili Bessastaðasóknar.
Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., drög að samningi um kaup á húsnæði fyrir safnaðarheimili Bessastaðasóknar og gerði grein fyrir endanlegum texta ásamt yfirlýsingu um kvöð.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samning við Bessastaðasókn um framlag vegna kaupa á húsnæði fyrir safnaðarheimili að Brekkuskógum 1. Kaupverðið er kr. 57.000.000 og er framlag Garðabæjar kr. 18.000.000 og verður það greitt með þremur jöfnum greiðslum á árunum 2016 - 2018. María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 22/5 ´15.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar, 1. tl., þróunaráætlun fyrir svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2015 - 2018 og 13. tl., framkvæmdir við Arnarnesveg.$line$$line$Baldur Ó Svavarsson, 2. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., þróunaráætlun fyrir svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2015 - 2018.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson ræddi að nýju 2. tl., deiliskipulag Kirkjubrúar.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.$line$
08
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 27/5 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 10. tl., styrk til KFG og óskaði eftir upplýsingum nánari upplýsingum um styrkþegann.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál og upplýsti nánar um viðkomandi aðila.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 12. tl., gestakort Reykjavíkur og 7. tl., byggingu fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 7. tl., byggingu fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
12
Eigendafundur Strætó bs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., akstursútboð Strætó bs.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
13
Fjögurra ára þróunaráætlun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar frá fundi 17. apríl sl. um þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2015 - 2018. Í tillögunni er gert ráð fyrir að 7.500 nýjar íbúðir verði fullbúnar á tímabilinu til að mæta fjölgun íbúa og tryggja eðlilegan vöxt höfuðborgarsvæðisins.