Fjögurra ára þróunaráætlun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar frá fundi 17. apríl sl. um þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2015 - 2018. Í tillögunni er gert ráð fyrir að 7.500 nýjar íbúðir verði fullbúnar á tímabilinu til að mæta fjölgun íbúa og tryggja eðlilegan vöxt höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (1688). fundur
Bæjarráð vísar tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að þróunaráætlun 2015 - 2018 (fyrri hluti), sem samþykkt var á fundi nefndarinnar 17. apríl 2015, til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Hrafnkell Proppe svæðisskipulagsstjóri gerði grein fyrir fyrri hluta þróunaráætlunar svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt hefur verið í svæðisskipulagsnefnd og vísað til sveitarfélaga sem aðild eiga að svæðisskipulaginu.$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða áætlun.
Bæjarráð Garðabæjar
04
16 (1684). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
1 (1669). fundur
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að umbeðnar upplýsingar verði sendar til SSH.