Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs 2/6 ´15.

Málsnúmer 1505035F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. fundur

Guðrún Arna Kristjánsdóttir, ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og þakkaði jákvæðar undirtektir og lýsti ánægju með að tillögunni hafi verið vísað til umfjöllunar skólanefndar.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu á hugmyndum um fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., tillögu Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu og 5. tl., útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., kynningu á hugmyndum um fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 5. tl., útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., drög að samningi um kaup á húsnæði fyrir safnaðarheimili Bessastaðasóknar og gerði grein fyrir endanlegum texta ásamt yfirlýsingu um kvöð.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samning við Bessastaðasókn um framlag vegna kaupa á húsnæði fyrir safnaðarheimili að Brekkuskógum 1. Kaupverðið er kr. 57.000.000 og er framlag Garðabæjar kr. 18.000.000 og verður það greitt með þremur jöfnum greiðslum á árunum 2016 - 2018. María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.$line$