Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 26/5 ´15.

Málsnúmer 1505027F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., bréf SSH varðandi skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og óskaði eftir nánari upplýsingum um hvernig fyrirhugað er að standa að uppbyggingunni.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn og gerð grein fyrir hugmyndum um samstarf við aðila um byggingu og rekstur á heimilum fyrir fatlað fólk.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., bréf Stjörnunnar varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Ásgarði og vildi nota tækifærið til að þakka Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, fyrir fórnfús störf í þágu Stjörnunnar á liðnum árum en Jóhann lét af formennsku á síðasta aðalfundi félagsins. Sigurður óskaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og beindi því til formanns fjölskylduráðs að taka málið á dagskrá ráðsins.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, ræddi 7. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og greindi frá að fyrirhugað er að ræða málið í fjölskylduráði.$line$$line$Baldur Ó Svavarsson, ræddi 8. tl., bréf Stjörnunnar varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Ásgarði. Baldur tók undir þakkarorð í garð Jóhanns Steinars og góða óskir til nýrrar stjórnar. Baldur ræddi 11. tl., sölutilboð eigenda Hofsstaða.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 11. tl., sölutilboða eigenda Hofsstaða.$line$$line$$line$Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.$line$