Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (798). fundur
Bæjarstjórn samþykkir reglur um ferðaþjónustu fatlaðra skólabarna með fyrirvara um að þær verði samþykktar af öllum aðildarsveitarfélögunum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (1756). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar með fyrirvara um að þær verði samþykktar af öllum aðildarsveitarfélögunum.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
28. (1745). fundur
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti sameiginlegar reglur vegna ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
8. (791). fundur
Gunnar Valur Gíslason, gerði grein fyrir tillögu að nýjum sameiginlegum reglum fyrir ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti reglur um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð Garðabæjar
05
18. (1735). fundur
Bæjarráð vísar drögum að sameiginlegum reglum ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
5. (788). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu samráðshóps SSH um breytingar á pöntunar- og opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð Garðabæjar
07
7. (1724). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu samráðshóps SSH um breytingu á pöntunar- og opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
2. (785). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu stjórnar SSH um að ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu starfi áfram á grundvelli samkomulags sveitarfélaganna frá því í maí 2014 sem felur í sér að Strætó bs. annast áfram þann hluta ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk sem lagt var upp með í þjónustulýsingu sem fylgdi samkomulaginu. Í ljósi fyrirliggjandi reynslu verða gerðar nauðsynlegar lagfæringar og breytingar á samkomulaginu, sameiginlegum reglum og þjónustulýsingu sem nánar er lýst í tillögunni.
Bæjarráð Garðabæjar
09
2. (1719). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um að ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu starfi áfram á grundvelli samkomulags sveitarfélaganna frá því í maí 2014 sem felur í sér að Strætó bs. annist áfram þann hluta ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk sem lagt var upp með í þjónustulýsingu sem fylgdi samkomulaginu. Í ljósi fyrirliggjandi reynslu verða gerðar nauðsynlegar lagfæringar og breytingar á samkomulaginu, sameiginlegum reglum og þjónustulýsingu sem nánar er lýst í tillögunni.
Fylgiskjöl
- SSH_02_1501012_Minnisblað_FFF_tillaga_ad_stjornsyslul_fyrirk.lagi_2016_01_11_pg_v2.m.pdf
- SSH_02_FFF_Tillaga_Stjornsyslulegt_fyrirkomulag_2015_01_11_pg_v2.m.pdf
- SSH_02_Fundur_01082016_samráðshóps_SSH.pdf
- SSH_02_Lokaskýrsla_framkvæmdaráðs_ferðaþj.fatlaðs_fólks_13.12.2015.pdf
- FW: Erindi frá SSH til bæjarráðs Hafnarfjarðar
- SSH_Gardabaer_FFF_2016_01_12.pdf
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
17. (781). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu stjórnar SSH um að hlutdeild hvers sveitarfélags í notkun á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk verði reiknuð á grundvelli þess tíma sem hvert sveitarfélag notar frá og með 1. janúar 2015. Við útreikning á hlutdeild hvers sveitarfélags fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. október verði byggt á þeim hlutfallstölum sem fram koma í fyrirliggjandi minnisblaði framkvæmdastjóra frá 10. september sl. en þaðan í frá verður byggt á rauntímaskráningu hvers tímabils.
Bæjarráð Garðabæjar
11
43. (1711). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um að hlutdeild hvers sveitarfélags í notkun á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk verði reiknuð á grundvelli þess tíma sem hvert sveitarfélag notar frá og með 1. janúar 2015. Við útreikning á hlutdeild hvers sveitarfélags fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. október verði byggt á þeim hlutfallstölum sem fram koma í fyrirliggjandi minnisblaði framkvæmdastjóra frá 10. september sl. en þaðan í frá verður byggt á rauntímaskráningu hvers tímabils.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
12
40. (1708). fundur
Lögð fram samþykkt stjórnar SSH um breytingu á útreikningi á kostnaði á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk ásamt breytingum á skipulagi.
Bæjarráð felur fjölskyldusviði að leita leiða um að útfæra nauðsynlegar breytingar á núverandi framkvæmd og skipulagi þjónustunnar til að ná fram lækkun á aksturskostnaði.