Beint í efni

39. (1756). fundur

11.10.2016
Bæjarráð Garðabæjar

39. (1756). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

11.10.2016

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1605122

01

Lynggata 2-4 -Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180 byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss með 22 íbúðum að Lynggötu 2-4.

Málsnúmer 1610043

02

Bréf Úti og Inni um skiptingu fasteignarinnar að Hrísholti 11, dags. 04.10.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610017

03

Bréf Regins hf. um skipulagsmál í Molduhrauni og á Garðatorgi, dags. 30.09.16.

Málsnúmer 1610002

04

Bréf EBÍ um ágóðahlutagreiðsla 2016, dags. 27.09.16.

Lagt fram bréf EBÍ þar sem fram kemur að ágóðahlutur greiddur Garðabæ á árinu 2016 er fjárhæð kr. 1.810.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606034

05

Bréf Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar, dags. 30.09.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til frekari meðferðar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610041

06

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni af skemmtikvöldi Stjörnunnar 15. október 2016.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1610051

07

Bréf innanríkisráðuneytis um form og efni viðauka við fjárhagsáætlun, dags. 03.10.16.

Málsnúmer 1610067

08

Rammasamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti samninginn fyrir hönd Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610087

09

Umsókn Arnarskóla um starfsleyfi fyrir sjálfstætt starfandi þróunarskóla

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs og til umfjöllunar í skólanefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510181

10

Drög að reglum um skólaakstur fatlaðra skólabarna

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar með fyrirvara um að þær verði samþykktar af öllum aðildarsveitarfélögunum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610022

11

Bréf Brúar - lífeyrissjóðs um hækkun mótframlags launagreiðenda í A deild lífeyrissjóðs, dags. 03.10.16.

Lagt fram og vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609048

12

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis 29. október 2016.

Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara 29. október 2016.

Á kjörskrá eru samtals 11.390 kjósendur þar af 5.824 konur og 5.566 karlar.

Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fjöldi kjósenda 9.647 og í Álftanesskóla 1.743. Kjósendum hefur fjölgað um 858 frá síðustu Alþingiskosningum 2013 eða um 8,14%.

Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, kjörskrá Garðabæjar til að gilda við forsetakosningar 29. október 2016.

Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 19. október til kjördags.

Fylgiskjöl