Beint í efni

Beiðni um skiptingu fasteignar að Hrísholti 11.

Málsnúmer 1610043

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (808). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

6. (808). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að hafna tillögu eigenda Hrísholts 11 um skiptingu eignar en við grenndarkynningu komu fram athugasemdir nágranna þar sem með málefnalegum rökum er lagst gegn samþykkt tillögunnar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1776). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna tillögu eigenda Hrísholts 11 um skiptingu eignar en við grenndarkynningu komu fram athugasemdir nágranna þar sem með málefnalegum rökum er lagst gegn samþykkt tillögunnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskiplagi Hnoðrarholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að lóðin Hrísholt 11 verði skilgreind sem lóð fyrir tvíbýlishús.
Tillagan hefur verið grenndarkynnt og athugasemdir hafa borist frá eigendum 8 húsa í Hrísholti, Eskiholti og Háholti. Allar athugasemdir leggjast gegn samþykkt tillögunnar.
Í mótmælum nágranna er vísað til þess að í gildandi skipulagi komi fram að eingöngu sé gert ráð fyrir einbýlishúsum í hverfinu og því sé byggðamynstur hverfisins einsleitt og fastmótað. Það felist því í samþykkt tillögunnar grundvallarbreyting á skipulagi og nýtingu hverfisins.
Í tilviki beiðni eiganda að Hrísholti 11 samþykkti skipulagsnefnd að gera tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi hverfisins vegna eingöngu viðkomandi lóðar, enda uppfyllti eignin kröfur um 2 bílstæði á hvora íbúð, þarna eru tvær íbúðir og verða áfram en eignarhald er enn á einni hendi. Auk þess er dæmi þess að eign í Hnoðraholti hafi verið skipt í tvær íbúðir. Í samræmi við ákvæði skipulagslaga var tillagan grenndarkynnt og hafa borist mótmæli nágranna við samþykkt tillögunnar.

Á síðasta ári féll úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2016 í máli nr. 120/2014 en þá var kærð ákvörðun bæjarstjórnar Kópvogs að hafna að breyta skráningu einbýlishúss í tvíbýlishús. Það haggaði ekki þeirri niðurstöðu þótt áður hafi verið fallist á breytingu úr einbýli í tvíbýli fyrir eitt hús í annarri götu á skipulagssvæðinu, en engin andmæli bárust við kynningu tillögu að þeirri breytingu. Verður yfirvöldum ekki talið skylt að fylgja því fordæmi.

Með vísan til athugasemda nágranna og til úrskurðar Úrskuðrarnefndar umhverfis-og auðlindamála nr.130/2016 samþykkir skipulagsnefnd að leggja til við bæjarstjórn að beiðni eiganda Hrísholts 11 um skiptingu eignarinnar verði hafnað.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

08

2. (1768). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir.

Lagt fram bréf Garðars Garðarsson, íbúa að Hrísholti 7 þar sem vakin er athygli á að í breytingunni felist meiriháttar breyting á skipulagi hverfisins og geti hún því ekki talist óveruleg eins og bókað er í fundargerð skipulagsnefndar. Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

1. fundur

Lögð fram beiðni að skiptingu einbýlishússins að Hrísholti 11 í tvíbýlishús. 4 bílastæði eru á lóð auk tvöfaldrar bílageymslu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum húsa við Hrísholt sem og við Eskiholt 16, 18 og 20.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

10

49. (1766). fundur

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Baldur Ó. Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

11

39. (1756). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl