Beint í efni

49. (1766). fundur

20.12.2016
Bæjarráð Garðabæjar

49. (1766). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

20.12.2016

Kl. 08:00 - 08:35

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - varamaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1611141

01

Afgreiðsla skipulagsnefndar að tillögu um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðanna við Lynghóla 32-38.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðanna við Lynghóla 32-38 þar sem gert er ráð fyrir fjölgun íbúða úr fjórum í átta.

Málsnúmer 1606457

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar um heimild til fráviks frá skipulagi við útgáfu á byggingarleyfi að Holtsvegi 35.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að ekki sé fylgt að fullu ákvæði í skilmálum um útfærslu handriða og ákvæða um gras á þaki bílageymslu en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1612093

03

Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga um ályktun Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins á haustþingi 2016, dags. 05.12.16

Málsnúmer 1612140

04

Bréf stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur um styrk, dags. 14.12.16.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610043

05

Beiðni um skiptingu fasteignar að Hrísholti 11.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Baldur Ó. Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1612152

06

Minnisblað stjórnar Hönnunarsafns Íslands um endurskoðun gjaldskrár, dags. 15.12.16.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar Hönnunarsafns að nýrri gjaldskrá fyrir safnið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1612111

07

Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi, dags. 12.12.16.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 1612154

08

Tillaga um nemakort í ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir tillögu að bjóða aðilum í ferðaþjónustu fatlaðs fólk að kaupa nemakort samkvæmt þeim skilmálum sem um kortin gilda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1612092

09

Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir heimagistingu að Hliðsnesi 6b.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1612148

10

Umsagnarbeiðni vegna leyfis fyrir brennu á gamlárskvöld

Um er að ræða umsóknir vegna brennu við Arnarnesvog og á bökkum Gesthúss á Álftanesi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðin leyfi verði veitt.