Lynghólar 32-38 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða við Lynghóla 32-38. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir þar sem fjölgun íbúða var mótmælt. Um er að ræða óverulega fjölgun íbúða og gefa athugasemdir við tillöguna ekki tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
18. (1784). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða við Lynghóla 32-38. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir þar sem fjölgun íbúða var mótmælt. Um er að ræða óverulega fjölgun íbúða og gefa athugasemdir við tillöguna ekki tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra að lokinni auglýsingu sem fór fram frá 10.mars til 21.apríl sl. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu, Garðapóstinum og á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem dreifibréf var sent í öll hús í Lynghólum og Hraunhólum. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðirnar Lynghólar 32, 34, 36 og 38 breytist úr raðhúsalóðum í tvíbýlishúsalóðir. Íbúðum fjölgar úr 4 í 8. Byggingarmagn og hæð húsa er óbreytt. Gert verður ráð fyrir utanhússstigum sem ná út fyrir byggingarreit að framanverðu.
Lagt fram erindi undirritað af 14 íbúum í nágrenninu þar sem því er mótmælt að íbúðum verði fjölgað.Einnig er gerð athugasemd við legu stofnstígs um Lynghóla á þessum stað í aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd telur að þó að fjölgun íbúða hafi einhver áhrif til aukningar umferðar um Lynghóla þá stuðli fjölgun íbúða að því að auka framboð á minni íbúðum sem henti ungu fjölskyldu fólki. Staðsetningin sé auk þess í góðu göngufæri við grunnskóla, útvistarsvæði, íþróttasvæði og almenningssamgöngur.
Skipulagsnefnd leggur til að athugasemd við legu stofnstígs í aðalskipulagi sé vísað til úrvinnslu aðalskipulagstillögu þeirrar sem nú er í auglýsingu. Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að leitað sé leiða til þess að breyta legu stofnstígs á þessum stað.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta frá augýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Hraunsholts eystra að lokinni kynningu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í Lynghólum 32-38 um fjórar og að húsin verði tvíbýlihús í stað raðhúsa.
Lagt fram erindi með athugasemdum.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
1. (803). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðanna við Lynghóla 32-38 þar sem gert er ráð fyrir fjölgun íbúða úr fjórum í átta.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
06
49. (1766). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðanna við Lynghóla 32-38 þar sem gert er ráð fyrir fjölgun íbúða úr fjórum í átta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
19. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að á lóðunum Lynghólar 32-38 verði 4 fjölbýlishús með 2 íbúðum í hverju húsi í stað raðhúslengju með 4 íbúðum á tveimur hæðum. Engin breyting verður á byggingarmagni né húshæð en íbúðum fjölgar úr 4 í 8. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Senda skal dreifibréf í öll hús í Lynghólum og Hraunhólum þar sem athygli verður vakin á kynningunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
17. fundur
Vísað í frekari skoðun hjá tækni-og umhverfissviði. Athuga þarf sérstaklega ákvæði um útfærslur hljóðvistar við Hafnarfjarðarveg og Engidalsgatnamót.