9. (811). fundur
9. (811). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
18.05.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Einnig sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. maí 2017 er lögð fram.
Halldór Jörgensson ræddi 2. tl. um fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur um veitingahúsalóð og óskaði nánari skýringa.
Gunnar Einarsson ræddi 2. tl. og greindi frá því að svar verði lagt fram í bæjarráði.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/5 ´17.
Gunnar Einarsson ræddi 19 tl. um framkvæmdir við gervigrasvelli.
Fundargerðin sem er 20 tl., er samþykkt samhljóða.
1.19 - 1703262 - Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði
Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi til framkvæmda við þrjá gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði, sbr. 19. tl. fundargerðarinnar.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/5 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað. Guðrún fjallaði um eftirspurn eftir minni íbúðum í því sambandi.
Sigurður Guðmundsson,ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað og gerði nánari grein fyrir afstöðu skipulagsnefndar. Sigurður lagði áherslu á að með samþykktinni væri ekki verið að koma í veg fyrir að byggðar verði minni íbúðir.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls á ný um 10. og 11. tl.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 10. tl. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafna og vakti athygli á að minni íbúðir eru að koma á markaðinn. Þá fjallaði Gunnar almennt um eftirspurn eftir íbúðum í Urriðaholti.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. og 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um aðal- og deiliskipulag Heiðmerkur og lýsti ánægju með afgreiðslu málsins.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað.
Sigurður Guðmundsson ræddi að nýju 10 og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað og 2. og 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um aðal- og deiliskipulag Heiðmerkur.
Fundargerðin sem er 24 tl., er samþykkt samhljóða.
María Grétarsdóttir mætti á fundinn.
2.1 - 1702223 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna borgarlínu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar, samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga, vegna legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg. Um verður að ræða sameiginlega kynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.
Fylgiskjöl
2.10 - 1704094 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 14-20.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum, tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 14-20. Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson og Gísli Geir Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
2.11 - 1612052 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 36-38-40-42.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 36, 38, 40 og 42. Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson og Gísli Geir Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
2.12 - 1705125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga og háholts Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18. Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Fylgiskjöl
2.13 - 1705117 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á götuheiti.
Bæjastjórn samþykkir umsókn Urriðaholts ehf. um að götuheiti Vörðuvegar verði breytt í Vinarstræti.
Fylgiskjöl
2.14 - 1704241 - Drög að samningi við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland.
Bæjarstjórn samþykkir samning við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland. Verðlaunafé samkvæmt 7. gr. skal vera kr. 10.000.000 og fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 6.000.000.
Fylgiskjöl
2.2 - 1204363 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur. Í athugasemdafresti auglýsingar bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til samkvæmt 1. mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga ásamt athugasemdum og umsögn skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.3 - 1507053 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Heiðmörk.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir við tillöguna sem þykja ekki gefa tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
2.4 - 1611141 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra varðandi lóðir við Lynghóla 32-38.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða við Lynghóla 32-38. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir þar sem fjölgun íbúða var mótmælt. Um er að ræða óverulega fjölgun íbúða og gefa athugasemdir við tillöguna ekki tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
2.5 - 1603374 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra varðandi lóðina við Akrabraut 1.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Akrabraut 1. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og hefur verið komið á móts við athugasemdir við afgreiðslu tillögunnar. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun.
Fylgiskjöl
2.6 - 1704152 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda varðandi lóðina við Ránargrund 4.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna aukins byggingarmagns á lóðinni við Ránargrund 4 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Guðrún Elín Herbertsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
2.8 - 1612163 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 9-27.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna sameiningar lóðanna við Mosagötu 9-27.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 5/5 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., menningaruppskeruhátíð 2017, 2. tl., úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna og 3. tl., tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 27/4 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., sumarbeit við Vífilsstaði.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., sumarbeit við Vífilsstaði
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/5 ´17.
Sturla Þorsteinsson ræddi, 2. tl., plastsöfnun og sagði frá fyrirætlun Sorpu um úrræði við söfnun á plasti á höfuðborgarsvæðinu og um plastsöfnun í Garðabæ.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fræðslu um þessi mál fyrir íbúa. Guðrún Elín, ræddi einnig um samtal sem bærinn þyrfti að eiga við hestamenn um að ganga frá plastrúllum þannig að þær fjúki ekki.
Sturla Þorsteinsson, ræddi að nýju 2. tl., plastsöfnun og vék að fræðslu fyrir íbúa um plastsöfnun og endurvinnslu almennt.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fræðslu og kynningu fyrir íbúa. Jóna sagði frá upplýsingu um hlutfall plasts og pappír í almennu sorpi hjá íbúum Garðabæjar. Þá ræddi Jóna 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., plastsöfnun og fjallaði um pappírstunnur og tæmingu á pappírsgámum.
Sturla Þorsteinsson, ræddi að nyju 2. tl., plastsöfnun og fjallaði almennt um þjónustu við sorphirðu og betri þjónustu í kringum blátunnuna.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fjallaði almennt um sorphirðu, samtal við hestamenn og íbúa um hvernig hægt er að gera Garðabæ að snyrtilegasta bænum.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls og ræddi um árlegt hreinsunarátak sem er nýlokið þar sem yfir 30 hópar tóku þátt í að hreinsa bæinn og mikilvægi þess að fá íbúa til samstarfs um þessi mál.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi að nýju 2. tl., frá 10/5 plastsöfnun.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi um ásýnd bæjarins og samstarf við íbúa þar um.
Sigurður Gunnarsson ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar og sagði frá íbúafundi sem verður haldinn þriðjudaginn 30. maí kl. 17:15 í Flataskóla.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð ungmennaráðs frá 25/4 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og ræddi um strætósamgöngur út á Álftanes og gott samtal við fulltrúa ungmennaráðs sem sat fundi með starfshópi um strætóleið 23.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 5/5 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., innri endurskoðun 10. tl., erindi Sorpstöðvar Suðurlands um framlengingu samnings, 9. tl., gjaldskrá endurvinnslustöðva ? álagsgjald og innheimta og 11. tl., skýrslu um lyktarmál í Álfsnesi.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl. úttekt á gjaldskrá Sorpu og óskaði eftir nánari upplýsingum um málið.
Sturla Þorsteinsson ræddi 5. tl., úttekt á gjaldskrá Sorpu og sagði að gögn varðandi málið verði send til bæjarfulltrúa.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 28/4 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., orkuskipti í almenningssamgöngum og sagði frá skýrslu sem er komin á vef Strætó. Þá ræddi Gunnar Valur, 2. tl., innri endurskoðun, 5. tl., leiðakerfismál - kvöld og næturakstri. Gunnar Valur sagði frá samráðsfundum um leið 23 og boðaði minnisblað frá hópnum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., leiðakerfismál - kvöld og næturakstur.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og ræddi aðalfund Strætó og sagði m.a. frá umræðum vagnstjóra um hraðahindranir. Gunnar ræddi einnig áhugavert markaðsátak Strætó um bestu leiðina, borgarlínu og um orkugjafa framtíðarinnar.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., leiðarkerfismál - kvöld og næturakstur og 1. tl., orkuskipti í almenningssamgöngum.
Fundargerðin lögð fram.