Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/5 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (811). fundur
Sturla Þorsteinsson ræddi, 2. tl., plastsöfnun og sagði frá fyrirætlun Sorpu um úrræði við söfnun á plasti á höfuðborgarsvæðinu og um plastsöfnun í Garðabæ.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fræðslu um þessi mál fyrir íbúa. Guðrún Elín, ræddi einnig um samtal sem bærinn þyrfti að eiga við hestamenn um að ganga frá plastrúllum þannig að þær fjúki ekki.
Sturla Þorsteinsson, ræddi að nýju 2. tl., plastsöfnun og vék að fræðslu fyrir íbúa um plastsöfnun og endurvinnslu almennt.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fræðslu og kynningu fyrir íbúa. Jóna sagði frá upplýsingu um hlutfall plasts og pappír í almennu sorpi hjá íbúum Garðabæjar. Þá ræddi Jóna 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., plastsöfnun og fjallaði um pappírstunnur og tæmingu á pappírsgámum.
Sturla Þorsteinsson, ræddi að nyju 2. tl., plastsöfnun og fjallaði almennt um þjónustu við sorphirðu og betri þjónustu í kringum blátunnuna.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., plastsöfnun og fjallaði almennt um sorphirðu, samtal við hestamenn og íbúa um hvernig hægt er að gera Garðabæ að snyrtilegasta bænum.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls og ræddi um árlegt hreinsunarátak sem er nýlokið þar sem yfir 30 hópar tóku þátt í að hreinsa bæinn og mikilvægi þess að fá íbúa til samstarfs um þessi mál.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi að nýju 2. tl., frá 10/5 plastsöfnun.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi um ásýnd bæjarins og samstarf við íbúa þar um.
Sigurður Gunnarsson ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar og sagði frá íbúafundi sem verður haldinn þriðjudaginn 30. maí kl. 17:15 í Flataskóla.
Fundargerðin lögð fram.