Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 16/5 ´17.

Málsnúmer 1705026F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (811). fundur

Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað. Guðrún fjallaði um eftirspurn eftir minni íbúðum í því sambandi.

Sigurður Guðmundsson,ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað og gerði nánari grein fyrir afstöðu skipulagsnefndar. Sigurður lagði áherslu á að með samþykktinni væri ekki verið að koma í veg fyrir að byggðar verði minni íbúðir.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls á ný um 10. og 11. tl.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 10. tl. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafna og vakti athygli á að minni íbúðir eru að koma á markaðinn. Þá fjallaði Gunnar almennt um eftirspurn eftir íbúðum í Urriðaholti.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. og 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um aðal- og deiliskipulag Heiðmerkur og lýsti ánægju með afgreiðslu málsins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað.

Sigurður Guðmundsson ræddi að nýju 10 og 11. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deilskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem erindi um fjölgun íbúða er hafnað og 2. og 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um aðal- og deiliskipulag Heiðmerkur.

Fundargerðin sem er 24 tl., er samþykkt samhljóða.

María Grétarsdóttir mætti á fundinn.