18. (1784). fundur
18. (1784). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
16.05.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1702223
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna borgarlínu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar, samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga, vegna legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg. Um verður að ræða sameiginlega kynningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.
Málsnúmer 1204363
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur. Í athugasemdafresti auglýsingar bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til samkvæmt 1. mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga ásamt athugasemdum og umsögn skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1507053
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Heiðmörk.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir við tillöguna sem þykja ekki gefa tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1611141
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra varðandi lóðir við Lynghóla 32-38.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna fjölgunar íbúða við Lynghóla 32-38. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir þar sem fjölgun íbúða var mótmælt. Um er að ræða óverulega fjölgun íbúða og gefa athugasemdir við tillöguna ekki tilefni til breytinga á henni. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1603374
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra varðandi lóðina við Akrabraut 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Akrabraut 1. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og hefur verið komið á móts við athugasemdir við afgreiðslu tillögunnar.
Málsnúmer 1704152
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda varðandi lóðina við Ránargrund 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna aukins byggingarmagns á lóðinni við Ránargrund 4 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1704232
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Hörgatún 7.
Lögð fram.
Málsnúmer 1612163
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 9-27.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna sameiningar lóðanna við Mosagötu 9-27.
Málsnúmer 1606266
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1 og 3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1704094
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 14-20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 14-20.
Málsnúmer 1612052
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 36-38-40-42.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 36, 38, 40 og 42.
Málsnúmer 1705125
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta og háholts Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18. Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Málsnúmer 1705117
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á götuheiti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn Urriðaholts ehf., um að götuheiti Vörðuvegar verði breytt í Vinastræti.
Málsnúmer 1704241
14
Drög að samningi við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland. Verðlaunafé samkvæmt 7. gr. skal vera kr. 10.000.000 og fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 6.000.000.
Málsnúmer 1705098
15
Bréf Þjóðskjalasafns um drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns, dags. 08.05.17.
Í bréfinu er gerð grein fyrir kynningar- og umsagnarferli um drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705075
16
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórnar (kosningaaldur), 190. mál, 05.05.17.
Málsnúmer 1705114
17
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um veitingaleyfi fyrir skála Golfklúbbs Setbergs
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1705115
18
Erindi Hestamannafélagsins Spretts varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2017.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 1.960.870 til greiðslu fasteignagjalda árið 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705113
19
Bréf Íbúðalánasjóðs varðandi kynningarfund um gerð húsnæðisáætlana, ódags.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir kynningarfundi með starfsmönnum Íbúðalánasjóðs og undirbúningi að gerð húsnæðisáætlunar fyrir Garðabæ sem verður unnin í samráði við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705146
20
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi dælustöð fyrir eldsneyti við Ásgarð, dags. 05.05.17.
Bæjarráð telur eigi tímabært að verða við erindinu og vísar í því sambandi til hugmynda um endurskoðun skipulags á svæðinu í tengslum við rammaskipulag Lyngáss og Hafnarfjarðarvegar og tillögu um legu borgarlínu um Hafnarfjarðarveg og Arnarnesveg.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703262
21
Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að tilboð í yfirborðsefni voru opnuð í gær en nákvæm úrvinnsla um niðurstöður þeirra liggur ekki fyrir.
Málsnúmer 1702231
22
Útboð skólamálsverða í grunnskólum 2017.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í skólamálsverði í grunnskólum Garðabæjar þar sem útkoman byggir á besta hlutfalli milli verðs (60%) og gæða (40%)
Verð Matseðlar Rekstur Samtals
Skólamatur ehf. 60,00 25 15 100
ISS Íslandi ehf. 59,11 23 15 97,11
Sölufélag Garðyrkjumanna (i) 59,36 23 15 97,36
Sölufélag Garðyrkjumanna (ii) 56,24 25 15 96,24
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Skólamats ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Málsnúmer 1703246
23
Bréf Stjörnunnar um leyfi fyrir auglýsingaskiltum, dags.05.05.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið varðandi breytingar á skilti í Vetrarmýri enda verði settir skilmálar um ljósmengun sem lagðir verða fram til staðfestingar í bæjarráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705153
24
Lundaból - viðbygging - framkvæmdir
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að engin tilboð bárust í forvali vegna framkvæmda við
viðbyggingu og endurbætur Lundabóls.
Bæjarráð samþykkir að bæjarverkfræðingur leiti samninga við verktaka um tilboð í verkið sem lagt skal fram í bæjarráði til staðfestingar.