Beint í efni

Vörðuvegur 2-18, dsk br

Málsnúmer 1705125

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga og háholts Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18. Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta og háholts Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Vörðuveg 2-18. Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram umsókn Urriðaholts ehf um breytingar á deiliskipulagi vegna bygginganna að Vörðuvegi 2-18 sem eru á háholtinu.
Er hér um að ræða minni háttar breytingar á útfærslu bygginganna sem eiga að stuðla að því að bæta útlit þeirra og yfirbragð. Sérstakur rýnihópur á vegum þróunaraðlila hefur það hlutverk að rýna tillögur að byggingum á háholtinu með tilliti til mikilvægi þess í heildarmynd hverfisins. Rýnihópurinn styður framlagðar tillögur. Jákvæð umsögn deiliskipualagshöfndar liggur fyrir og hún lögð fram.
Skipulagsnefnd telur að hér sé um óverulegar breytingar á deiliskipulagi að ræða. Þar sem að tillagan varða eingöngu hagsmuni Garðabæjar og umsækjanda er grenndarkynning felld niður sbr.3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.