Íþróttavellir í Ásgarði og Bæjargarði. Framkvæmdir.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
15. (837). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afturköllun á framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu ljósamastra við íþróttavöll í Bæjargarði sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. október 2017. Á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs þar sem gerð er nákvæmari grein fyrir uppsetningu mastranna og verður á grundvelli hennar sótt um byggingarleyfi fyrir uppsetningu þeirra.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
04
39. (1854). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afturköllun á framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu ljósamastra við íþróttavöll í Bæjargarði sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. október 2017. Á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs þar sem gerð er nákvæmari grein fyrir uppsetningu mastranna og verður á grundvelli hennar sótt um byggingarleyfi fyrir uppsetningu þeirra.
Bæjarráð Garðabæjar
05
46. (1812). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir girðingum við íþróttavelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
María Grétarsdóttir, situr hjá.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
16. (818). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við uppsetningu ljósabúnaðar við nýja gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
07
39. (1805). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við uppsetningu ljósabúnaðar við nýja gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
13. fundur
Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir ljósabúnaði 2 gervigrasvalla í Ásgarði og Bæjargarði skv. tillögu Landlags efh dags 3.10.2017. Hæð ljósastaura verði ekki hærri en 9,5 metrar. Um er að ræða völl sunnan við Garðfit í Bæjargarði og völl í Ásgarði vestan við lóð Flataskóla.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir ljósabúnaði fyrir gervigrasvöllinn í Ágarði annarsvegar og Bæjargarði hinsvegar.
Bæjarráð Garðabæjar
09
24. (1790). fundur
Lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem kröfu um stöðvun framkvæmda við gerð gervigrasvallar í Bæjargarði er hafnað. Áframhaldandi framkvæmdir eru
á áhættu Garðabæjar meðan ekki hefur verið kveðinn upp endanlegur úrskurður.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við hönnun heildarsvæðis innan Bæjargarðs þar sem gert verði ráð fyrir stígum, trjá og runnagróðri sem og fjölbreytilegri leikja og útivistaraðstöðu.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
10
22. (1788). fundur
Bæjarstjóri greindi frá samráði við íbúa um framkvæmdir við gervigrasvöll í Bæjargarði.
Lagt fram bréf íbúa, dags. 12. júní 2017 þar sem lagt er til að færa staðsetningu vallarins nær svæði við Ásgarð og að Stekkjarflöt að öðrum kosti eru ítrekaðar kröfur í málinu og tillögu um sátt hafnað.
Bæjarráð leggur áherslu á að staðsetning íþróttavalla samkvæmt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs hafi verið ákveðin með heildarsýn svæðisins huga. Sú sýn var kynnt og auglýst í lögboðinni meðferð tillögunnar. Breyting nú á gildandi deiliskipulagi kallar á nýja meðferð málsins með nýrri kynningu, auglýsingu, umsögn hagsmunaðila og umtalsverðri töfum á verkframkvæmd. Auk þess má benda á að breyting á staðsetningu íþróttavalla krefst þess að endursemja þarf við verktaka um framkvæmd verksins með verulegum kostnaðarauka.
Bæjarráð samþykkir að við útfærslu verksins verði horft til þess að eiga áfram samráð við íbúa um að draga úr sjónrænum áhrifum vallarins gagnvart byggðinni í Fitjum með mögulegri færslu vallarins um allt að 5 metra, lækkun um allt að 60 cm, gerð hljóðmana og nánari útfærslu á girðingu og lýsingu.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir við gervigrasvöll verði hafnar að nýju samhliða því sem greinargerð, þar sem stöðvunarkröfu er mótmælt, verði send úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Bæjarráð Garðabæjar
11
20. (1786). fundur
Lagt fram minnisblað VSÓ Ráðgjafar um mat á tilboðum um knattspyrnugras á þrjá æfingavelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
Tilboð bárust frá eftirfarandi aðilum:
Altís (2 tilboð) kr. 73.146.000 - 88.176.000
My Turfs (5 tilboð) kr. 71.709.856 - 139.098.040
Laiderz (1 tilboð) kr. 53.699.591
Metatron (2 tilboð) kr. 74.956.000 - 76.892.000
Í minnisblaðinu kemur fram að aðeins Metatron uppfyllir allar kröfur útboðsgagna.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron ehf. í efnið Polytan-Ligaturf RS að fjárhæð kr. 76.892.000, enda séu uppfylltir að öðru leyti útboðsskilmálar og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
12
19. (1785). fundur
Tilboð í verkið voru opnuð 15. maí sl. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi til framkvæmda við þrjá gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði, sbr. 19. tl. fundargerðarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
14
18. (1784). fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að tilboð í yfirborðsefni voru opnuð í gær en nákvæm úrvinnsla um niðurstöður þeirra liggur ekki fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
15
17. (1783). fundur
Bæjarráð samþykkir að veita leyfi til framkvæmda við þrjá gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði. Samþykkt hefur verið tilboð í jarðvinnuframkvæmdir og er verksamningur tilbúinn til undirritunar. Opnun tilboða í yfirborðsefni var frestað og samþykkir bæjarráð að fela bæjarverkfræðingi að tilkynna bjóðendum að tilboð verði opnuð mánudaginn 15 maí nk.
Bæjarráð samþykkir að við framkvæmdina verði horfið frá því að breikka og stækka núverandi völl við Stekkjarflöt og þar verði einungis um að ræða endurnýjun á gervigrasi vallarins. Í breytingunni felst að ekki kemur til færslu á ljósamöstrum girðingu eða göngustíg sem liggur utan girðingar meðfram baklóðum húsa við Stekkjarflöt.
Bæjarráð Garðabæjar
16
15. (1781). fundur
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. að fjárhæð kr. 159.175.583 með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Jafnframt er fyrirvari gerður um að fallið verði frá kröfu um stöðvun framkvæmda í kærumáli hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs. Bæjarráð samþykkir að falla frá breikkun gervigrasvallar við Stekkjarflöt og mun því eingöngu vera um að ræða framkvæmdir við endurnýjun á gervigrasi vallarins.
Bæjarráð Garðabæjar
17
14. (1780). fundur
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Grafa og grjót ehf. kr. 236.619.550
Háfell ehf. kr. 159.175.583
Kostnaðaráætlun kr. 187.195.790
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.