Beint í efni

22. (1788). fundur

13.06.2017
Bæjarráð Garðabæjar

22. (1788). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

13.06.2017

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Almar Guðmundsson - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1611240

01

Hnoðraholtsbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjaráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veit OR-veitum ohf., kt. 551298-3029 leyfi fyrir byggingu dælustöðvar að Hnoðraholtsbraut 2.

Málsnúmer 1705263

02

Ægisgrund 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ester Rut Unnsteinsdóttur, kt. 030868-3079 leyfi til að byggja sólstofu við núverandi hús við Ægisgrund 4.

Málsnúmer 1704161

03

Dalsbyggð 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Haraldi Líndal Péturssyni, kt. 130478-5499 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Dalsbyggð 8.

Fyrirvari er gerður um samþykki bæjarstjórnar á samþykkt skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 1705260

04

Blikastígur 14 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingibjörgu Eyþórsdóttur, kt. 201257-6039, leyfi fyrir byggingu bílskúrs við einbýlishúsið að Blikastíg 14.

Fyrirvari er gerður um samþykki bæjarstjórnar á samþykkt skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 1608318

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á byggingarleyfi fyrir stækkun hússins við Haukanes 22.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar á kjallararými húss í byggingu við Haukanes 22.

Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1704161

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Dalsbyggð 8

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Dalsbyggð 8.

Málsnúmer 1705260

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar um umsókn um byggingarleyfi fyrir bifreiðargeymslu við Blikastíg 14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Blikastíg 14.

Málsnúmer 1703045

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna nýs deiliskipulags fyrir 1-4 áfanga austurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gerð lýsingar vegna nýs deiliskipulags fyrir 1.-4. hluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal kynnt fyrir almenningi og send hagsmunaaðilum og Skipulagsstofnun til umsagnar.

Málsnúmer 1702391

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir endurheimt votlendis við Urriðakotsvatns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við endurheimt votlendis í mýrlendi sunnan Urriðakotsvatn.

Málsnúmer 1703077

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1702279

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu umsóknar byggingarleyfis fyrir stækkun bílskúrs á lóðinni að Brekkubyggð 28.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun bílskúrs við núverandi hús að Brekkubyggð 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1706069

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna fjölgunar íbúða úr 12 í 13 á lóðinni við Urriðaholtsstræti 30.

Málsnúmer 1706065

13

Bréf eldri borgarar varðandi líkamsrækt, dags. 24.06.17.

Lagt fram.

Málsnúmer 1706090

14

Bréf ÖBÍ varðandi skerðingar og ákvörðun fjárhæða sérstaks húsnæðisstuðnings, dags. 02.06.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs en á vegum fjölskyldusviðs er nú unnið að gerð tillagna að endurskoðun reglna Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1706134

15

Opnun tilboða í framkvæmdir við Vífilsstaðaveg, hringtorg - hljóðvist.

Eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við Vífilsstaðaveg, hringtorg-hljóðvist lögð fram.

Alma - verk ehf. kr. 73.170.500.

Ding - verk ehf. kr. 76.773.000.

Kostnaðaðaráætlun kr. 55.568.400.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Alma - verks ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Málsnúmer 1606484

16

Garðahverfi - verndarsvæði í byggð.

Tillaga um að gera Garðahverfi að verndarsvæði var auglýst eins og áskilið er í lögum um verndarsvæði byggð nr. 87/2015. Athugasemdarfrestur var til 6. júní 2017 og barst ein athugasemd og hefur henni verið vísað til umfjöllunar í tengslum við gerð nýs aðalskipulags.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1611192

17

Staða húsnæðismála Alþjóðaskólans á Íslandi.

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að Alþjóðaskólinn á Íslandi fái afnot af húsnæðinu Þórsmörk enda verði húsnæðið að hluta endurbætt og aðkoma að húsinu verði tengd við hringtorg við Vífilsstaðaveg.

Bæjarráð tekur jákvætt í málið og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

Málsnúmer 1706143

18

Staða innheimtumála.

Lögð fram drög að samantekt um stöðu innheimtumála.

Málsnúmer 1703262

19

Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.

Bæjarstjóri greindi frá samráði við íbúa um framkvæmdir við gervigrasvöll í Bæjargarði.

Lagt fram bréf íbúa, dags. 12. júní 2017 þar sem lagt er til að færa staðsetningu vallarins nær svæði við Ásgarð og að Stekkjarflöt að öðrum kosti eru ítrekaðar kröfur í málinu og tillögu um sátt hafnað.

Bæjarráð leggur áherslu á að staðsetning íþróttavalla samkvæmt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs hafi verið ákveðin með heildarsýn svæðisins huga. Sú sýn var kynnt og auglýst í lögboðinni meðferð tillögunnar. Breyting nú á gildandi deiliskipulagi kallar á nýja meðferð málsins með nýrri kynningu, auglýsingu, umsögn hagsmunaðila og umtalsverðri töfum á verkframkvæmd. Auk þess má benda á að breyting á staðsetningu íþróttavalla krefst þess að endursemja þarf við verktaka um framkvæmd verksins með verulegum kostnaðarauka.

Bæjarráð samþykkir að við útfærslu verksins verði horft til þess að eiga áfram samráð við íbúa um að draga úr sjónrænum áhrifum vallarins gagnvart byggðinni í Fitjum með mögulegri færslu vallarins um allt að 5 metra, lækkun um allt að 60 cm, gerð hljóðmana og nánari útfærslu á girðingu og lýsingu.

Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir við gervigrasvöll verði hafnar að nýju samhliða því sem greinargerð, þar sem stöðvunarkröfu er mótmælt, verði send úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Málsnúmer 1609138

20

Niðurstöður dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Á fund bæjarráðs mætti Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og gerði grein fyrir tillögum sem bárust í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Niðurstöður dómnefndar verða kynntar með opnun sýningar í anddyri íþróttamiðstöðvar Álftaness, kl. 16:00, fimmtudaginn 15. júní 2017.

Málsnúmer 1703183

21

Niðurstöður starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþróttahúss.

Lagt fram minnisblað starfshóps um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Bæjarráð vísar minnisblaðinu til dómnefndar um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaði og til umræðu í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl