Brekkubyggð 28 - Umsókn um DSK breytingu
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
16. (818). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar bílskúrs við raðhúsið við Brekkubyggð 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst athugasemd frá nágrönnum varðandi byggingarmagn og trjágróður og hefur tilmælum í samræmi við athugasemd verið komið á framfæri við umsækjanda.
Áslaug Hulda Jónsdóttir vék sæti við afgreiðslu á tillögunni.
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (1805). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar bílskúrs við raðhúsið við Brekkubyggð 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst athugasemd frá nágrönnum varðandi byggingarmagn og trjágróður og hefur tilmælum í samræmi við athugasemd verið komið á framfæri við umsækjanda.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grennarkynningu. Erindi hefur borist frá nágrönnum þar sem lýst er efasemdum um aukið byggingarmagn á meðan að svo mikill trjágróður sé á lóðinni . Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt þar sem ekki er gerð athugasemd við stækkun hússins í grenndarkynningu. Skipulagsnefnd beinir því til bæjarverkfræðings að rætt verði við umsækjanda um að umfang trjágróðurs á lóð hans verði minnkað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn um bílageymslu við endaraðhús að Brekkubyggð 28 að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir hafa borist. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
11. (813). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun bílskúrs við núverandi hús að Brekkubyggð 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
06
22. (1788). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun bílskúrs við núverandi hús að Brekkubyggð 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
7. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um byggingu tvöfaldrar bifreiðargeymslu við suðurhlið hússins sem er endahús raðhúsalengjunnar Brekkubyggð 20-28. Samþykki eigenda allra húsa í raðhúsalengjunni liggur fyrir.
Skipulagsnefnd vísar byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum í raðhúsalengjunum Brekkubyggð 2-8, 10-18, 20-28,30-38, 40-46, 48-52 og 54-56. Einnig eigendum Heiðarlundar 5, 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
5. fundur
Skipulagsnefnd óskar eftir því að samþykki eigenda allra íbúa í raðhúslengjunni liggi fyrir áður en hægt verður að taka afstöðu til hugmyndarinnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
3. fundur
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.