11. (813). fundur
11. (813). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í hátíðarsal Álftaness á 2. hæð íþróttamiðstöðvar
15.06.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Einnig sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. júní 2017 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1706004F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 6/6'17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að frá og með hausti 2017 verði daglegum ferðum á Strætóleið 23-Álftanes fjölgað sem hér segir.
o Fyllt verði upp í eyður á akstri leiðar 23 á virkum dögum þannig að ekið verði samfellt á hálftíma fresti. Auk þess verði einni viðbótarferð bætt við á kvöldin og eftir það tveimur ferðum í pöntunarþjónustu.
o Strætó aki að lágmarki með klukkutíma tíðni bæði á laugardögum og sunnudögum, þó sé horft til þess að hugsanlega er ekki mikill kostnaðarmunur á klukkutíma og hálftíma aksturstíðni. Síðasta kvöldferð vagnsins og pöntunarþjónusta á kvöldin verði eins og á virkum dögum
Litið skal á verkefni þetta sem tilraunaverkefni til a.m.k. tveggja ára sem fylgt verði eftir með markvissum rafrænum farþegatalningum svo að hægt sé að meta í lok verkefnisins með áreiðanlegum hætti hvort og þá hvenær og hvar á leið 23 farþegafjöldi eykst í kjölfar framangreindra breytinga“
Greinargerð:
Haustið 2016 barst bæjaryfirvöldum í Garðabæ erindi frá búum á Álftanesi varðandi Strætóleið 23-Álftanes. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2017 var fimm milljónum króna bætt við áætlað ársframlag bæjarins til Strætó bs. til þess að vinna málið áfram á yfirstandandi ári. Í kjölfarið fól bæjarstjóri fulltrúa bæjarins í stjórn Strætó að leiða málið áfram. Óskað var eftir aðkomu þriggja íbúa utan af Álftanesi að óformlegum samráðshópi til að ræða ofangreint erindi íbúa á Álftanesi og leita lausna á þeim atriðum sem þar voru tilgreind.
Samráðshópurinn hefur nú skilað greinargerð, dags. 15. maí 2017, til bæjarstjóra þar sem farið er efnislega yfir erindi íbúa frá haustinu 2016 og lagðar fram tillögur til lausnar á einstökum málum í því. Er framangreind samþykkt bæjarstjórnar í fullu samræmi við tillögur samráðshópsins.
Um nánari útfærslu einstakra liða í samþykkt bæjarstjórnar verði greinargerð samráðshópsins höfð til hliðsjónar t.a.m. varðandi hugsanlega styttingu aksturstíma leiðar 23, tímasetningu pöntunarþjónustu á kvöldin og hugsanlegar breytingar á stoppistöðvum. Þá verði haft samráð við Strætó um að pöntunarþjónusta á kvöldin sé með hálftíma fyrirvara en ekki klukkutíma fyrirvara eins og nú er.
Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl.. minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og framkomna tillögu. Steinþór lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
"Allt frá því á árinu 2011 hefur undirritaður flutt tillögur um fjölgun strætóskýla í Garðabæ. Að minnsta kosta í tvígang hefur bæjarstjórn samþykkt tillögu þess efnis að setja fjármagn í ný strætóskýli.
Hversu mörgum nýjum strætóskýlum hefur verið komið upp á þessum árum í Garðabæ og hvar eru þau staðsett."
María Grétarsdóttir, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi
Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og framkomna fyrirspurn.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju um 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1706016F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/6 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 13. tl., bréf eldri borgara varðandi líkamsrækt og spurði hverju liði athugun á erindi er borist hefur um líkamsræktarstöð við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., bréf eldri borgara varðandi líkamsrækt og svaraði fyrirspurnum.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 14. tl., bréf ÖBÍ varðandi skerðingar á ákvörðun fjárhæðar sérstaks húsnæðisstuðnings.
Almar Guðmundsson, ræddi 21. tl., niðurstöður starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþrótthúss og gerði grein fyrir helstu áherslum og megin niðurstöðum í minnisblaði hópsins.
Sigurður Guðmundsson , ræddi 20. tl., niðurstöður dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og gerði grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar. Sigurður óskaði vinningshöfum, dönsku arkitektastofunni Andersen&Sigurðsson til hamingju með fyrstu verðlaun í samkeppninni.
Gunnar Valur Gíslsson, ræddi 20. tl., niðurstöður dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og 21. tl., niðurstöður starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþróttahúss. Gunnar Valur lýsti ánægju með störf dómnefndar og starfshópsins og færði öllum sem að komu þakkir fyrir vel unnin störf.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1705038F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 31/5 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl. endurnýjun þjónustusamnings við Fjölsmiðjuna og 5. tl.,beiðni um umsögn vegna starfsemi CISV á Íslandi.
Málsnúmer 1705030F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 8/6 ´17
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1704025F
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 7/6 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706010F
06
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 7/12 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706011F
07
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 6/3 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706012F
08
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 1/6 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi útgáfu á stefnu í málefnum eldri borgara.
Guðrún Elín Herbertsson, ræddi heimaþjónustu fyrir eldri borgara og spurði um fyrirkomulag og val á þjónustuaðila.
Sturla Þorsteinsson, ræddi heimaþjónustu eldri borgara og svaraði fyrirspurn.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi heimaþjónustu eldri borgara.
María Grétarsdóttir, ræddi heimaþjónustu eldri borgara og vék að þörf fyrir samræmda þjónustu fyrir eldri borgara í bænum.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1705048F
09
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 31/5 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., erindi frá ungmennaráði og almenningssamgöngur. Þá ræddi Gunnar Valur 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og vék að kynningarfundi Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um stækkun golfvallarins.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., úthlutun úr 19. júní sjóði.
María Grétarsdóttir, ræddi 4. tl., úthlutun úr 19. júní sjóði og 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
Steinþór Einarsson, ræddi 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 8. tl., kynningu á starfsemi Golfklúbbsins Odds og hugmyndir um stækkun golfvallarsins.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706003F
10
Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/6 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706006F
11
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 7/6 ´17.
Sigríðu Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar á menntun án aðgreiningar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1706007F
12
Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/6 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., plastmálefni, 7. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla og 8. tl., tillögu vegna losunar á blaða- og pappírsúrgangi í fjölbýlishúsum.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla, 8. tl. tillögu vegna losunar á blaða- og pappírsúrgangi í fjölbýlishúsum og 4. tl., hjólamál á höfuðborgarsvæðinu ? þróun samgöngukerfa.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., hjólamál á höfuðborgarsvæðinu ? þróun samgöngukerfa og 7. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1702103
13
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 12/5 ´17.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi verkefni svæðisskipulagsnefndar og skilgreiningar sem settar hafa verið samkvæmt svæðisskipulagi um vaxtasvæði á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701289
14
Fundargerð stjórnar SHS frá 2/6 ´17.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi 2. tl., breytingar á skuldbindingum gagnvart Brú lífeyrissjóði.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701135
15
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 26/5 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. leiðakerfismál, 2. tl. breytingar hjá lífeyrissjóðnum Brú.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701401
16
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 9/6 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., stöðu í undirbúningi gas- og jarðgerðartöðvar, 3. tl. rýmisþörf í Gufunesi vegna aukins magns og umfangs, 6. tl. framleiðslu á dísel úr plasti, 8. tl., bókun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1606484
17
Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að leggja til við mennta- og menningarmálaráðherra að byggðin í Garðahverfi verði gerð að verndarsvæði samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Tillögunni fylgir greinargerð þar sem útmörkum svæðisins er lýst ásamt því sem fjallað er um varðveislugildi byggðarinnar og skilmála um vernd og uppbyggingu innan svæðisins. Tillagan hefur verið auglýst samkvæmt 4. mgr. 5. gr. ofangreindra laga auk þess sem haldinn var íbúafundur á Garðaholti. Ein athugasemd barst og hefur henni verið vísað til skipulagsnefndar í athugsemdarfresti tillögu að nýju aðalskipulagi.
María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1706164
18
Sumarleyfi bæjarstjórnar 2017
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 17. ágúst 2017. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 15. ágúst 2017.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.