Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar frá 24/11 og 8/12 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
14. (816). fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., breytingu á svæðisskipulagi vegna borgarlínu. Fjallaði Guðrún í því sambandi um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu og hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., breytingu á svæðisskipulagi vegna borgarlínu og fjallaði í því sambandi um sérakgreinar til að bæta almenningssamgöngur. Þá ræddi Gunnar Valur um 1. tl., kynningu á lokaskýrslu COWI um legu borgarlínu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð.
Halldór Jörgensson, ræddi hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð og umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu. Sigurður fjallaði um hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð og sérakgreinar til að bæta almenningssamgöngur.
Fundargerðin lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
11. (813). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi verkefni svæðisskipulagsnefndar og skilgreiningar sem settar hafa verið samkvæmt svæðisskipulagi um vaxtasvæði á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin er lögð fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
4. (806). fundur
Steinþór Einarsson ræddi 1. tl., fg. frá 10/2, Borgarlínu. Steinþór spurði í því sambandi um stöðu mála varðandi gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. fg. frá 10/2, Borgarlínu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, svaraði fyrirspurn um stöðu hönnunar og framkvæmda við endurbætur á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Fram kom að hönnun muni liggja fyrir í ár og að framkvæmdir eru fyrirhugaðar á árinu 2018.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., fg. frá 10/2, Borgarlínu
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., fg. frá 10/2, Borgarlínu
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.
Fundargerðirnar lagðar fram.