Beint í efni

20. (822). fundur

21.12.2017
Bæjarstjórn Garðabæjar

20. (822). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

21.12.2017

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. desember 2017 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1712020F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 12/12 ´17.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og greindi frá niðurstöðum í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt. Sigurður þakkaði öllum sem tóku þátt fyrir þeirra framlag og óskaði vinningshöfum, Batteríinu arkitektar, Eflu, og Landslagi til hamingju með 1. verðlaun.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og niðurstöður í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og niðurstöður í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., bréf íbúa í Prýðahverfi með áskorun um lokun gamla Álftanesvegar við Hraun og lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Björt framtíð leggur til að fallið verði frá áætlaðri lokun á gamla Álftanesvegi. Að í staðinn verði reynt að koma á hraðatakmörkunum í gegnum Prýðahverfið. Einnig leggur Björt framtíð til að sem allra fyrst verði gerð úttekt og öryggismat á vegtengingunni á nýja Álftanesveginum við Garðaholtið.“

Greinargerð:

Nú hefur ansi lengið staðið til hjá meirihlutanum að loka gamla Álftanesveginum við Prýðahverfið þrátt fyrir mikil mótmæli, m.a. íbúa við Naustahlein og Boðahlein. Þessi lokun er sögð bæta umferðaröryggið hjá íbúum Prýðahverfis. Sú aðgerð myndi í staðinn minnka umferðaröryggið hjá öðrum íbúum Garðabæjar, til að mynda íbúum Hleina og Álftaness. Beina á umferð sem annars fór í gegnum Prýðahverfi, í staðinn að vegtenginu við Garðaholtið inn á nýja Álftanesveginn. Þau gatnamót/vegtenging eru nú þegar talin mjög hættuleg. Þar þurfa bílar að þvera Álftanesveginn þar sem hraðinn er mikill og þar myndast líka oft lúmsk hálka. Björt framtíð hvetur meirihlutann að auka ekki bara umferðaröryggi hjá einum hóp Garðbæinga, á kostnað annarra. Þetta mál þarf að skoða í stærra samhengi. Björt framtíð leggur því til að byrjað verði á því að fara í hraðatakmarkanir á vegslóðanum í gegnum Prýðahverfið og að gert verði öryggismat á nýju vegtenginunni við Garðaholtið.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 13. tl., bréf íbúa í Prýðahverfi með áskorun um lokun gamla Álftanesvegar við Hraun og framkomna tillögu. Bæjarstjóri lagði til að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 15 tl er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1712035F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 19/12 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 9. tl., bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingar á vaxtarmörkum á Álfsnesi.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs. Þá ræddi Sigurður 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fjallaði í því sambandi um fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Halldór Jörgensson, ræddi 3. tl., yfirlit yfir framkvæmdir. Þá ræddi Halldór 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Guðrún Elín 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs.

Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Almar 5. tl., áramótabrennu og vakti athygli á nauðsyn þess að huga að nýrri staðsetningu vegna þróunar byggðar við Arnarnesvog.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Sigurður 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs.

Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1712026F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 13/12 ´17.

Sturla Þorsteinsson, ræddi framlög til fjölskyldna í tilefni jólahátíðar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1712003F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 6/12 ´17.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1712008F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 7/12 ´17.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ og mikilvægi þess að hugað verði að stækkun skólans.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þá ræddi Sigríður Hulda 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ, 3. tl., kjarasamning grunnskólakennara, 4. tl., ímyndunarvinnu kennara og 5. tl., kynning á starfi Barnaskólans Hjallastefnunnar

María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl. hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ og spurði um stöðu kennslu í upplýsingatækni.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ. Bæjarstjóri ræddi 3. tl. og 4. tl., er varða starfsmannmál og sagði frá niðurstöðum í viðhorfskönnun Jafnréttisstofu meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun. Bæjarstjóri boðaði kynningu á niðurstöðunum í bæjarráði á nýju ári.

María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ og boðaði formlega fyrirspurn um stöðu kennslu í upplýsingatækni.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1712021F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/12 ´17.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., móttöku og flokkun á plasti til endurvinnslu.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., móttöku og flokkun á plasti til endurvinnslu.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., móttöku og flokkun á plasti til endurvinnslu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1702103

07

Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar frá 24/11 og 8/12 ´17.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1702023

08

Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 16/11 og 7/12 ´17.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1701135

09

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 6/12 ´17.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1701401

10

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 15/12 ´17.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., niðurstöðu árlegrar húsasorpsrannsóknar, 1. tl., gas ? og jarðgerðarstöð og 6. tl., jólaúthlutun Góða hirðisins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1701182

11

Fundargerð stjórnar SSH frá 4/12 ´17.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1711156

12

Reglur um fjárhagsaðstoð.

Sturla Þorsteinsson, greindi frá helstu áherslum og breytingum í nýjum reglum um fjárhagsaðstoð.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða nýjar reglur um fjárhagsaðstoð.

Málsnúmer 1705313

13

Kosning fulltrúa í bæjarráð.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði til að Halldór Jörgensson taki sæti sitt sem aðalfulltrúi í bæjarráði frá og með 1. janúar 2018.

Tillagan samþykkt samhljóða.