Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 19/12 ´17.

Málsnúmer 1712035F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

20. (822). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 9. tl., bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingar á vaxtarmörkum á Álfsnesi.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs. Þá ræddi Sigurður 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fjallaði í því sambandi um fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Halldór Jörgensson, ræddi 3. tl., yfirlit yfir framkvæmdir. Þá ræddi Halldór 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Guðrún Elín 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs.

Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Almar 5. tl., áramótabrennu og vakti athygli á nauðsyn þess að huga að nýrri staðsetningu vegna þróunar byggðar við Arnarnesvog.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi. Þá ræddi Sigurður 4. tl., úrskurð ÚUA vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs.

Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 7. tl., bréf Vegagerðarinnar um yfirfærslu Álftanesvegar og fund skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.