Fundargerð bæjarráðs frá 12/12 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
20. (822). fundur
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og greindi frá niðurstöðum í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt. Sigurður þakkaði öllum sem tóku þátt fyrir þeirra framlag og óskaði vinningshöfum, Batteríinu arkitektar, Eflu, og Landslagi til hamingju með 1. verðlaun.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og niðurstöður í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., fjölnota íþróttahús í landi Vífilsstaða og niðurstöður í samkeppni í rammaskipulagi fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., bréf íbúa í Prýðahverfi með áskorun um lokun gamla Álftanesvegar við Hraun og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Björt framtíð leggur til að fallið verði frá áætlaðri lokun á gamla Álftanesvegi. Að í staðinn verði reynt að koma á hraðatakmörkunum í gegnum Prýðahverfið. Einnig leggur Björt framtíð til að sem allra fyrst verði gerð úttekt og öryggismat á vegtengingunni á nýja Álftanesveginum við Garðaholtið.“
Greinargerð:
Nú hefur ansi lengið staðið til hjá meirihlutanum að loka gamla Álftanesveginum við Prýðahverfið þrátt fyrir mikil mótmæli, m.a. íbúa við Naustahlein og Boðahlein. Þessi lokun er sögð bæta umferðaröryggið hjá íbúum Prýðahverfis. Sú aðgerð myndi í staðinn minnka umferðaröryggið hjá öðrum íbúum Garðabæjar, til að mynda íbúum Hleina og Álftaness. Beina á umferð sem annars fór í gegnum Prýðahverfi, í staðinn að vegtenginu við Garðaholtið inn á nýja Álftanesveginn. Þau gatnamót/vegtenging eru nú þegar talin mjög hættuleg. Þar þurfa bílar að þvera Álftanesveginn þar sem hraðinn er mikill og þar myndast líka oft lúmsk hálka. Björt framtíð hvetur meirihlutann að auka ekki bara umferðaröryggi hjá einum hóp Garðbæinga, á kostnað annarra. Þetta mál þarf að skoða í stærra samhengi. Björt framtíð leggur því til að byrjað verði á því að fara í hraðatakmarkanir á vegslóðanum í gegnum Prýðahverfið og að gert verði öryggismat á nýju vegtenginunni við Garðaholtið.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 13. tl., bréf íbúa í Prýðahverfi með áskorun um lokun gamla Álftanesvegar við Hraun og framkomna tillögu. Bæjarstjóri lagði til að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
Fundargerðin sem er 15 tl er samþykkt samhljóða.