Beint í efni

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 7/12 ´17.

Málsnúmer 1712008F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

20. (822). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ og mikilvægi þess að hugað verði að stækkun skólans.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þá ræddi Sigríður Hulda 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ, 3. tl., kjarasamning grunnskólakennara, 4. tl., ímyndunarvinnu kennara og 5. tl., kynning á starfi Barnaskólans Hjallastefnunnar

María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl. hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ og spurði um stöðu kennslu í upplýsingatækni.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ. Bæjarstjóri ræddi 3. tl. og 4. tl., er varða starfsmannmál og sagði frá niðurstöðum í viðhorfskönnun Jafnréttisstofu meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun. Bæjarstjóri boðaði kynningu á niðurstöðunum í bæjarráði á nýju ári.

María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., hagi og líðan ungs fólks í Garðabæ og boðaði formlega fyrirspurn um stöðu kennslu í upplýsingatækni.

Fundargerðin lögð fram.