14. (816). fundur
14. (816). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
21.09.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. september 2017 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 12/9 ´17.
Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 19/9 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg og vakti athygli á jákvæðu bréfi þar sem þakkað er fyrir blómin á Garðatorgi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg.
Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 7. tl.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Lótushúss um blómlegt Garðatorg.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
2.1 - 1707200 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Steinás 3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna breyttrar notkunar bílgeymslu o.fl. á lóðinni við Steinás 3.
Fylgiskjöl
2.2 - 1707038 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til fráviks frá skipulagsskilmálum vegna umsóknar um byggingarleyfi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 32.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum er varða uppbrot úthliða við fjölbýlishúsið við Urriðaholtsstræti 32. Um er að ræða óverulegt frávik sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
2.3 - 1709181 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.4 - 1709140 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi vegna lóðarinnar við Hákotsvör 8.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Hákotsvör 8 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Fylgiskjöl
2.5 - 1706267 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Keldugötu.
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturluta Urriðaholts þar sem lagt er til fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum við Keldugötu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir og María Grétarsdóttir sitja hjá.
Fylgiskjöl
2.6 - 1702066 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu svæðisskipulagsnefndar um auglýsingu á breytingu á svæðisskipulagi vegna Borgarlínu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna Borgarlínu og heimila auglýsingu á tillögunni samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/9 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., opin fund ÍTG um skipulag á íþróttastarfsemi fyrir börn og færði ráðinu þakkir fyrir gott framtak og góðan fund.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., opinn fund ÍTG.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., opinn fund ÍTG.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., opinn fund ÍTG.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., opinn fund ÍTG.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 6/9 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/9 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., starfsáætlun menningar- og safnanefndar 2017-2018, og 6. tl., vinnuaðstöðu í Króki veturinn 2017-2018.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 14/9 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Mörg skipulagsverkefni og hugmyndir um uppbyggingu eru í gangi í Garðabæ um þessar mundir. Til að hafa betri yfirsýn yfir tímalínu verkefnanna er óskað eftir því að tekið verði saman stutt minnisblað um stöðu einstakra skipulagsverkefna í nýjum hverfum og á þéttingarreitum. Hversu langt eru þau komin og hvenær er áætlað að þeim ljúki.
Hvenær er áætlað að hefja úthlutun á hverju svæði.“
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi húsnæði klaustursins, framkvæmdir við veitingastað við Arnarnesvog og uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum og upplýsti um stöðu mála.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi um uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 14/9 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 25/8 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., forsendur fjárhags- og starfsáætlunar 2018.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/9 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., forsendur rekstraráætlunar 2018-2022, 4. tl., möguleika á notkun jarðvegsbætis frá gas- og jarðgerðarstöð og 3. tl., verklagsreglur um birtingu fundargagna af stjórnarfundum
Fundargerðin lögð fram.
15
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 5/9 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
16
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 8/9 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., breytingu á svæðisskipulagi vegna borgarlínu. Fjallaði Guðrún í því sambandi um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu og hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., breytingu á svæðisskipulagi vegna borgarlínu og fjallaði í því sambandi um sérakgreinar til að bæta almenningssamgöngur. Þá ræddi Gunnar Valur um 1. tl., kynningu á lokaskýrslu COWI um legu borgarlínu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð.
Halldór Jörgensson, ræddi hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð og umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., breytingar á svæðisskipulagi vegna borgarlínu. Sigurður fjallaði um hugmyndir um tengingu við Álftanes með brú yfir Skerjafjörð og sérakgreinar til að bæta almenningssamgöngur.
Fundargerðin lögð fram.