8. (810). fundur
8. (810). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
04.05.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. apríl 2017 er lögð fram.[line]
Dagskrá
Málsnúmer 1704011F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/4'17.
Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og Bæjargarð og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Nú eru að fara af stað miklar framkvæmdir við uppbyggingu knattspyrnuvalla á Ásgarðssvæðinu og er það vel. Einnig er farinn af stað hópur til að vinna að byggingu fjölnota íþróttahúss í bænum.
Fyrir um tveimur árum var lagt gervigras á malarvöllinn á Álftanesi, er öllum framkvæmdum lokið, er völlurinn og ytri aðstæður að uppfylla öll skilyrði sem sett eru til keppni?“
Björg Fenger ræddi sama mál, framkomna fyrirspurn og sagði frá áformum um kaup á búnaði og frágangi á vallarsvæði á Álftanesi.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1704017F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 25/4´17.
María Grétarsdóttir, ræddi 24. tl., fyrirspurn varðandi samning um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í ársbyrjun 2016 auglýsti Garðabær lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog. Þrjár umsóknir bárust. Umsóknir skyldu metnar með tilliti til fjárhagslegs styrks umsækjanda, mati á hugmyndum um fyrirkomulag byggingar og raunhæfni hugmynda um uppbyggingu, fjárfestingu og rekstur veitingastaðar.
Þann 7. júní 2016 samþykkti bæjarráð með fjórum atkvæðum Áslaugar Huldu (D), Sigríðar Huldu (D), Jónu (D) og Gísla (S) að leggja til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við óstofnað hlutafélag Arnarvog ehf. um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari var um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda. Áætlanir Arnarvogs gerðu ráð fyrir að hefja rekstur um 18 mánuðum frá úthlutun lóðar eða í árslok 2017.
Samkvæmt yfirlýsingu dagsettri 26. febrúar 2016 skuldbinda fjórir aðilar sig til að stofnað verði einkahlutafélagið Arnarvogur ehf og að leggja félaginu til fjármagn upp á að minnsta kosti 150 milljónir króna. Þessir aðilar eru Símon Sigurpálsson f.h. Miðbúðarinnar fjárfestingarfélags ehf. (30%), Brynjar Már Magnússon f.h. Fjárfestingarfélagsins Pluma ehf (30%), Benedikt Einarsson f.h. Hængs ehf. (30%) og Sigurbjörn Ingimundarson (10%). Bæjarstjóri undirritar samning við Sigurbjörn Ingimundarson f.h. Arnarvogs ehf þann 11. nóvember 2016. 28. nóvember 2016 er félagið Arnarnesvogur ehf. stofnað og eru stofnendur þess Miðbúðin hf. (40%), Fjárfestingafélagið Pluma ehf (40%), Bloom ehf. (10%) og Vinaminni, óskráð eignarhaldsfélag (10%). Benedikt Einarsson/Hængur ehf. er ekki meðal stofnenda né heldur Sigurbjörn Ingimundarson sbr. þó framangreinda yfirlýsingu en nýir aðilar komnir inn þ.e. Bloom ehf. og Vinaminni, óskráð eignarhaldsfélag. Einnig er Miðbúðin hf. komin inn í stað Miðbúðarinnar eignarhaldsfélags ehf.
Fólkið í bænum óskar eftir skýringum á hvers vegna gengið var til samninga við óskráð félag sbr. að samningur bæjarins er gerður við Arnarvog ehf. en ekki Arnarnesvog ehf. Einnig er óskað skýringa á af hverju bæjarfulltrúum hafi ekki verið kynnt breytt eignarhald samningsaðila við úthlutun lóðarinnar.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði og 24. tl., fyrirspurn varðandi samning um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Björg Fenger, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði. Þá ræddi Björg 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og færði skátunum hamingjuóskir í tilefni afmælisins.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og tók undir afmælisóskir til félagsins.
Steinþór Einarsson, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði og 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og tók undir hamingjuóskir til félagsins.
Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1704034F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 2/5´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 15. tl., greinargerð Sorpu bs. um úrræði við söfnun plasts á höfuðborgarsvæðinu.
Steinþór Einarsson, ræddi 15. tl., greinargerð Sorpu bs. um úrræði við söfnun plasts á höfuðborgarsvæðinu.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi að nýju 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 14. tl., minnisblað Gallup um skipun rýnihópa í tengslum við þjónustukönnun og 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1704023F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 27/4´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., önnur mál kynningu á vinnu starfshóps um fjölnota íþróttahúss.
Björg Fenger, ræddi sama mál og sagði að einungis hafi verið um kynningu á skipun hópsins. Þá ræddi Björg og sagði frá vinnufundi a vegum Landlæknis um heilsueflandi samfélag.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704005F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 6/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1703043F
06
Fundargerð mannréttinda- og forvarnarnefndar frá 5/4´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl.
María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704009F
07
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/4´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., jazzhátíð Garðabæjar 2017, 3. tl. tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar, 5. tl., menningarviðburðir í miðbæ Garðabæjar, 7. tl., menningaruppskeruhátíð 2017 og 8. tl. bæjarlistamaður Garðabæjar 2017.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., jazzhátíð Garðabæjar 2017 og 6. tl. fræðslu- og sögugöngur 2017.
Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., menningarviðburðir í miðbæ Garðabæjar og 6. tl., fræðslu- og sögugöngur.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., jazzhátíð Garðabæjar 2017 og 6. tl., fræðslu- og sögugöngur.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704021F
08
Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/4´17.
María Grétarsdóttir, ræddi 10. tl., Ránargrund 4 - umsókn um byggingarleyfi.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., deiliskipulag í austurhluta Urriðaholts.
Baldur Ó Svavarsson, ræddi 2. tl., skipulag lóðar við Grænagarð og 12. tl., deiliskipulag í austurhluta Urriðaholts.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., skipulag lóðar við Grænagarð.
Baldur Ó Svavarsson, ræddi að nýju 2. tl., skipulag lóðar við Grænagarð.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704002F
09
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 6/4´17.
Kristinn Guðlaugsson, ræddi 3. tl., blásturshljóðfærakennsla og sagði nánar frá hugmyndinni en um er að ræða tilraunaverkefni.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1703051F
10
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 3/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1703048F
11
Fundargerð umhverfisnefndar frá 5/4´17.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., verndarsvæði í byggð - Garðahverfi, 7. tl., votlendisendurheimt við Urriðavatn, 8. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla, 1. tl., mat á verndargildi náttúruminja í Urriðavatnsdölum, 3. tl., styrkveitingu frá framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að gera bílastæði í Heiðmörk og 9. tl., hjóla- og gönguteljara.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., mat á verndargildi náttúruminja í Urriðavatnsdölum og 9. tl., hjóla- og gönguteljara
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 9. tl., hjóla- og gönguteljara og 5. tl., verndarsvæði í byggð - Garðahverfi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 5. tl., verndarsvæði í byggð - Garðahverfi.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., verndarsvæði í byggð - Garðahverfi.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 5. tl., verndarsvæði í byggð - Garðahverfi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1703030F
12
Fundargerð ungmennaráðs frá 6/4´17.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., lagfæringu gatna við Ásgarð og Garðaskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704087
13
Fundargerðir eigendavettvangs Strætó bs frá 23/1 og 3/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701135
14
Fundargerðir Strætó bs frá 7/4´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., þjónustukönnun í ferðaþjónustu fatlaðs fólks og 2. tl., vinnustaðagreiningu 2016.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704086
15
Fundargerðir eigendavettvangs Sorpu bs frá 25/1 og 3/4´17.
Steinþór Einarson, ræddi 1. tl., rekstrarúttekt.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl. rekstrarúttekt.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., rekstrarúttekt.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701401
16
Fundargerð stjórnar Sorpu bs frá 7/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1702103
17
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar SSH frá 7/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701182
18
Fundargerð stjórnar SSH frá 3/4´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., skipun nefndar til að ræða við Sorpstöð Suðurlands.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701412
19
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 24/4´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704241
20
Tillaga um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögu um samkeppni um rammaskipulag Hnoðraholts og Vífilsstaðalands.
Baldur Ó. Svarsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti stuðningi við tillöguna.
„Bæjarstjórn samþykkir að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaði.
Skipa skal fimm manna dómnefnd vegna samkeppninnar og skal hún skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur fulltrúum frá Arkitektafélagi Íslands.
Dómnefndin skal semja keppnislýsingu og gera nánari afmörkun á skipulagssvæðinu.“
Greinargerð.
Á árinu 2006 efndi Garðabær til samkeppni um rammaskipulag Hnoðraholts og í nóvember 2007 var samþykkt að láta vinna rammaskipulag fyrir svæði á grundvelli verðlaunatillögu.
Fyrir liggur rammaskipulagsuppdráttur, dags. í júní 2008 en ekki var unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið eða einstak áfanga þess.
Nú þegar Garðabær hefur eignast allt Vífilsstaðalandið er eðlilegt að gera rammaskipulag fyrir svæðið í heild þar sem hagsmunir þess og lega fléttast saman.
Lagt er til að efnt verði til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um rammaskipulag alls svæðisins en með því er líklegt að fram komi fjölbreyttar og vandaðar hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd.
Tilnefndir af bæjarstjórn:
Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar, Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs og varabæjarfulltrúi og Baldur Ó. Svavarsson, varabæjarfulltrúi og varamaður í skipulagsnefnd.
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
Tryggvi Tryggvason, arkitekt og Hildur Gunnardóttir, arkitekt.
Sigurður Guðmundsson er skipaður formaður dómnefndar.
Málsnúmer 1703060
21
Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar 2017-2018.
Bæjarstjórn samþykkir nýja gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar til að gilda fyrir skólaárið 2017 - 2018.
Málsnúmer 1604253
22
Samningur um kaup á jörðinni Vífilsstaðir.
Sigurður Guðmundsson kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir sérstakri ánægju með gerð samningsins.
Gunnar Valur Gíslsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir stuðningi við samninginn sem hann sagði mjög mikilvægan fyrir Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir samhljóða kaupsamning um jörðina Vífilsstaði sem undirritaður var af bæjarstjóra Garðabæjar og fjármála- og efnahagsráherra 19. apríl 2017.
Málsnúmer 1605502
23
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - Viðauki 5
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráðstafa hluta af arðgreiðslu bæjarins, af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, til verkefnis eða verkefna í forvarnarmálum í þágu ungs fólks í Garðabæ.“
Greinargerð:
Arðgreiðsla Garðabæjar af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, eins og kom fram á aðalfundi sjóðsins á dögunum, er um 17 milljónir króna. Skynsamlegt væri að nota að minnsta kosti hluta þess fjár til forvarna fyrir ungt fólk. Mörg brýn verkefni kæmu til greina, meðal annars verkefni til að vinna með kvíða sem fer vaxandi hjá ungu fólki, notkun snjalltækja og áhrif þeirra á ungt fólk. Verkefnin væri hægt að vinna í samvinnu við aðra aðila, svo sem heilsugæslu Garðabæjar. Fræðslu- og menningarsvið sem kemur mest að starfi með ungu fólki væri falið að koma með tillögur og kostnaðaráætlun að verkefni eða verkefnum fyrir bæjarráð.
Sturla Þorsteinsson, lýsti yfir ánægju með tillöguna og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samkvæmt samningi um kaup á jörðinni Vífilsstöðum er kaupverð kr. 558.600.000 og um heimild vísast til eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017.
Kaupverð jarðarinnar Vífilsstaðir kr. 558.600.000
Greiðsla við undirritun skv. a-lið 6. gr. samnings kr. 99.300.000
Skuldbinding til allt að 8 ára skv. b og c-lið 6. gr. samnings kr. 459.300.000
Breyting á fjárhagsáætlun
Staðgreiðslu útsvars kr. -99.300.000
Langtímaskuldbinding færð í efnahag kr. 459.300.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar til bæjarráðs.
Fleira ekki gert.
Undirritun á næstu síðu.