Samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Lögð fram greinargerð dómnefndar þar sem birtar eru niðurstöður í samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands.
Niðurstöðum vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og vinningshöfum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (1816). fundur
Lögð fram og kynnt eftirfarandi niðurstaða dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
1. verðlaun kr. 5.000.000 Höfundar: Batteríið, Landslag og Efla
2. verðlaun kr. 2.000.000 Höfundar: Teiknistofa Arkitekta , Gylfi guðjónsson og félagar.
2. verðlaun kr. 2.000.000 Höfundar: Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, Skipulag og hönnun, Inga Sigurjónsdóttir, arkitekt
3. verðlaun kr. 1.000.000 Höfundar: Sei, Barbara Sopolinska, Einar Hlér Einarsson, Shruthi Basappa.
Bæjarráð vísar niðurstöðum dómnefndar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
32. (1798). fundur
Bæjarráð samþykkir að Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt taki sæti sem fulltrúi Arkitektafélags Íslands í dómnefnd um samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts í stað Hildar Gunnarsdóttur, sem hefur beðist lausnar vegna flutninga til Danmerkur.
Bæjarráð Garðabæjar
04
32. (1798). fundur
Bæjarráð samþykkir keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland, sbr. 6.gr. samnings Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um samkeppnishald. Skilafrestur tillagna er til 20. nóvember 2017.
Bæjarráð Garðabæjar
05
23. (1789). fundur
Í bréfinu er vakin athygli á mikilvægi þess, að mati félagsins, að þess verði gætt að leitað verði eftir sérþekkingu landslagsarkitekta við mat á tillögum í samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts.
Bæjarráð vísar bréfinu til dómnefndar um samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samning við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland. Verðlaunafé samkvæmt 7. gr. skal vera kr. 10.000.000 og fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 6.000.000.
Bæjarráð Garðabæjar
07
18. (1784). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Arkitektafélag Íslands um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland. Verðlaunafé samkvæmt 7. gr. skal vera kr. 10.000.000 og fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 6.000.000.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
8. (810). fundur
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögu um samkeppni um rammaskipulag Hnoðraholts og Vífilsstaðalands.
Baldur Ó. Svarsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti stuðningi við tillöguna.
„Bæjarstjórn samþykkir að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaði.
Skipa skal fimm manna dómnefnd vegna samkeppninnar og skal hún skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur fulltrúum frá Arkitektafélagi Íslands.
Dómnefndin skal semja keppnislýsingu og gera nánari afmörkun á skipulagssvæðinu.“
Greinargerð.
Á árinu 2006 efndi Garðabær til samkeppni um rammaskipulag Hnoðraholts og í nóvember 2007 var samþykkt að láta vinna rammaskipulag fyrir svæði á grundvelli verðlaunatillögu.
Fyrir liggur rammaskipulagsuppdráttur, dags. í júní 2008 en ekki var unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið eða einstak áfanga þess.
Nú þegar Garðabær hefur eignast allt Vífilsstaðalandið er eðlilegt að gera rammaskipulag fyrir svæðið í heild þar sem hagsmunir þess og lega fléttast saman.
Lagt er til að efnt verði til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um rammaskipulag alls svæðisins en með því er líklegt að fram komi fjölbreyttar og vandaðar hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd.
Tilnefndir af bæjarstjórn:
Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar, Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs og varabæjarfulltrúi og Baldur Ó. Svavarsson, varabæjarfulltrúi og varamaður í skipulagsnefnd.
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
Tryggvi Tryggvason, arkitekt og Hildur Gunnardóttir, arkitekt.
Sigurður Guðmundsson er skipaður formaður dómnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
09
16. (1782). fundur
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.