32. (1798). fundur
32. (1798). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
29.08.2017
Kl. 08:00 - 08:35
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Tilnefning nýs fulltrúa í dómnefnd samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts.
Bæjarráð samþykkir að Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt taki sæti sem fulltrúi Arkitektafélags Íslands í dómnefnd um samkeppni um rammaskipulag Vífilsstaða og Hnoðraholts í stað Hildar Gunnarsdóttur, sem hefur beðist lausnar vegna flutninga til Danmerkur.
02
Tillaga dómnefndar á keppnislýsingu í samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland.
Bæjarráð samþykkir keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland, sbr. 6.gr. samnings Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um samkeppnishald. Skilafrestur tillagna er til 20. nóvember 2017.
03
Bréf félags atvinnurekenda varðandi álagningu fasteignaskatts, dags. 21.08.17.
04
Greinargerð Gallup um niðurstöður rýnihópa um þjónustu Garðabæjar.
Bæjarráð vísar greinargerðinni til umfjöllunar sviða og til nánari skoðunar og úrlausnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
05
Tilkynning Jafnréttisstofu um landsfund um jafnréttismál í sveitarfélögum í Stykkishólmi í september 2017.
Lagt fram.
06
Kynningarbréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um dagskrá og skráningu á málþing um íbúalýðræði, dags. 21.08.17.
Lagt fram.
07
Umsókn Guðmundu Ingu Gunnarsdóttur um styrk til að stunda háskólanám.
Bæjarráð samþykkir umsókn Guðmundu Ingu Gunnarsdóttur, deildarstjóra á Ökrum um styrk skólaárið 2017-2018 sem nemur sem 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda M.Ed. nám við Háskóla Íslands.