Greinargerð Gallup um niðurstöður rýnihópa um þjónustu Garðabæjar.
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
19. fundur
Greinargerð rýnihópsins kynnt. Ánægjulegt er að sjá að rýnt er í þá þjónustuþætti sem vilji er til að bæta.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (1798). fundur
Bæjarráð vísar greinargerðinni til umfjöllunar sviða og til nánari skoðunar og úrlausnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
26. fundur
Lagt fram og leikskólanefnd fagnar góðri útkomu leikskólanna í könnuninni.
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (1782). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum í minnisblaði Gallup um skipun umræðuhópa til að rýna nánar niðurstöður í ákveðnum þáttum könnunar á þjónustu Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu um skipun fjögurra rýnihópa til að taka eftirfarandi málefni til umfjöllunar.
Þjónusta við barnafjölskyldur.
Þjónusta við eldri borgara.
Þjónusta við fatlað fólk.
Úrlausn erinda hjá öllum sviðum á bæjarskrifstofum.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
3. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1610112 íbúakönnun - þjónustukönnun 2016.
Bæjarráð vísaði könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.
Hulda Hauksdóttir, upplýsinga- og menningarfulltrúi, situr fundinn undir þessum lið og kynnir helstu þætti könnunarinnar sem mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins.
Greint er frá því að bæjarráð hafi samþykkt að setja á fót rýnihópa til að greina frekar niðurstöður í einstaka málaflokkum.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
06
17. fundur
Lagðar fram niðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
08
21. fundur
Íbúakönnun Gallup sem mælir viðhorf íbúa í 19 stærstu sveitarfélögum landsins tekin fyrir. Bæjarráð vísaði könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.
Lögð var fram til kynningar könnun Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.
Einnig var greint frá því að bæjarráð hafi samþykkt að setja á fót rýnihópa til að greina frekar niðurstöður í einstaka málaflokkum.
Bæjarráð Garðabæjar
09
7. (1773). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2016 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda ásamt því að til setja á fót rýnihópa til að greina niðurstöður í einstaka málaflokkum.